Ég er að lenda í vandræðum með að ná gögnum af flakkaranum hjá mér. Hann er orðinn frekar gamall greyið og mig grunar að diskurinn sé orðinn eitthvað bilaður. Ég kemst rétt inn á hann áður en hann frýst, en næ ekki að kópera neitt eða ná neinu útaf honum. Koma cannot copy ástæður og I/O errors og eitthvað.
Hvernig er best fyrir mig að ná gögnunum útaf draslinu? Setja þetta bara til fagmanns eða er eitthvað sem ég get reynt í fljótu bragði?



