Jæja. Nýjustu fréttir!
Fjármálafyrirtækin hafa verið með í bið síðan í lokt október, útreikninga þeirra sem voru með "flóknari" lán. Þe. þá sem höfðu tekið yfir annarra manna lán með einhverjum tilfæringum. Gera má ráð fyrir að það sé mjög stór hluti þeirra sem tóku umrædd lán.
Ástæðan fyrir þessari bið var sú að efnahags- og viðskiptaráðherra gaf það út að frumvarp kæmi á Alþingi sem tæki til þessara útreikninga.
Frumvarpið kom út 11. nóvember og þar var hægt að sjá ákveðin tímamörk sem fjármálafyrirtækjum voru gefin sem og ýmiskonar reglur varðandi útreikningana. Efnahags- og skattanefnd hefur fjallað um frumvarpið síðan 6. desember og hef ég allavega beðið átekta eftir niðurstöðu frá þeim. Kom út nefndarálit sem og breytingartillaga í fyrradag sem samþykkt var af þinginu.
Þriðja og síðasta umræða fór síðan fram í gær og var frumvarpið með áðurnefndum breytingartillögum samþykkt kl 14:15.
Fjármögnunarfyrirtækin þurfa því aftur að setja reiknihjólin sín af stað, ljúka þessum útreikningum sínum og endurgreiða mismuninn, ef einhver, innan 60 daga.
Frumvarpið varðaði breytingu á gömlum lögum og enn er ekki komin lokaútgáfa á nýtt þingskjal á vefsíðu Alþingis.
Þangað til er hægt að skoða og bera saman:
http://www.althingi.is/altext/139/s/0225.html - upprunalegt frumvarp
http://www.althingi.is/altext/139/s/0631.html - Breytingartillaga