Þetta er sem sagt þriðji BMW bíllinn sem ég eignast og jafnframt sá elsti.
Árgerð 7/1994, ekinn 208.???km., svartur.
Búnaður:
- leður sportsæti
- rafmagn í sætum
- minni í sætum og speglum
- hiti í sætum
- rafmagn í rúðum
- rafmagns speglar
- gardína
- stóra aksturstölvan
- topplúga
- skíðapoki
- leður innrétting
- cruise control
- flottur alpine spilari með ipod dóti (sem ég kann ekkert á)
- 3.45 LSD
Vélin:
V8 4.0l 286hö 400Nm
Hér er mynd af honum eins og hann var þegar ég keypti hann: (Lánað frá fyrri eiganda, vonandi er það í lagi)

Ég er aðeins búinn að eiga við hann og það sem ég hef gert er eftirfarandi:
- Setti Bilstein dempara og Bavauto gorma í hann
- Lagaði ryð í honum
- Setti nýtt stýri í hann (gamla var rifið)
- Keypti ný dekk að aftan
- Setti gul stefnuljós allan hringinn



Framtíðarplönin eru meðal annars:
- Láta laga rifu í bílstjórasætinu [Komið]
- Fjarstýringu á samlæsingarnar [Komið]
- Fá aftur BMW merkin á húdd og skott og kannski 540iA merki líka
- Setja aðra spegla á hann
- Heilsprauta
Vonandi líst ykkur vel á gripinn






