Skemmtilegt að þessi ákvað að vera leiðinlegur og bila klukkutíma fyrir hóprúntinn í dag.
Gaf smá í nálægt Smáralindinni og við næstu ljós þá var hann í hlutlausann meðan hægargangurinn rokkaði milli 1000 og 3600 snúninga. Keyrði aðeins áfram, prófaði að setja í hlutlausann þá drap hann á sig. Núna þegar ég starta honum drepur hann á sér um leið nema ég gefi í og haldi mig á bensíngjöfina (eða haldi honum gefandi í í háum snúningum) annars deyr hann strax aftur. Kom einning grár reykur við inngjafirnar.
Svo reyndi ég að færa hann í stæði hjá smáralindinni og þá var einhvern voðalega leiðinlegur truntugangur í honum, hikstaði og læti og ótrúlega leiðinlegt hljóð í honum þannig að ég endaði með að draga hann heim.
Reyni að kíkja á þetta á morgun en ákvað að leyfa þessu að liggja hérna yfir nóttina bara til þess að fá hugmyndir um hvað ég ætti að kíkja á fyrst og fremst. Vita menn hvað þetta getur verið ? Núþegar búinn að fá ráðleggingar en fínt að fá að heyra frá sem flestum.

Vill einning þakka John Rogers innilega fyrir að hjálpa mér að redda dráttarauga þar sem að það var ekkert svoleiðis í bílnum, algjör meistari.
