Þetta er að framan svo það eru 2 þokuljós, það eru engin þokuljós að aftan.
Svo hefur einhver snillingur kíttað þokuljósið farþegamegin í stuðarann svo það er extra gaman að eiga við þetta.
Pæling að nota bara tækifærið og kaupa gul þokuljós

p.s. Smá update á þetta.
Snillingurinn sem kíttaði ljósin föst gerði greinilega ekki ráð fyrir því að skipta þyrfti um peru svo þetta svaka fína krókasystem sem er á E36 virkaði ekki. Ég mátti því tjakka bílinn upp, losa hlífðarplötuna af innra brettinu og síðan "saga" kíttið af ljósafatningunni...
Anyways þá var þetta bara ónýt pera sem tók 1mín að skipta um þegar ég var búinn að losa fatninguna.
Hins vegar kveikar ekki alltaf á þokuljósunum en ef ég djöflast í smá tíma á rofanum þá koma ljós fyrir rest, mældi þokuljósarofann og hann virðist alveg virka svo þetta hlýtur að vera aðalljósarofinn svo það er næst á dagskrá að útvega sér nýjan slíkan rofa.