slapi wrote:
Held að kallinn eigi ekki eftir að fýla SMG bílinn , hvað þá sem daily , það eru ekki margir sem digga SMG2. En um að gera að prófa það ef það er einhver almennilegur hugur í kallinum.
Sjálfskiptingarnar (ZF6HP24/26)hafa verið nokkuð solid HINGAÐ til , vissulega þarf alltaf að passa sig þegar maður dregur svona flykki á sjálfskiptum bíl. En þegar maður tengir eftirvagn aftaní BMW í dag ( ef hann er með OEM krók með OEM tölvu fyrir kerru) þá tekur bíllinn tillit til eftirvagnsins svosem EGS/DSC/PDC ofl.
Beinskipti bíllinn finnst mér fjandi skemmtilegur , hef engar samburðar tölur né neitt en kannski er það tilfinningin að hann vinni betur. Og auðvitað er hann ideal í svona drátt , hægt að rúnta í þokkalega háum gírum og láta hann púlla svolítið því hann hefur alveg aflið í það.
Þakka þér kærlega fyrir þetta svar. En hvað er þetta EGS/DSC/PDC nákvæmlega?
Og er þá alveg vonlaust að draga hljólhýsi og annað ef að það er ekki gert ráð fyrir því upphaflega?