POOLMÓT BMWKrafts - BREYTING Á TÍMA

Hvenær er næsta samkoma? Allt um það hér.

Ætlar þú að mæta á poolmót BMWKrafts ?

Já auðvitað poolmót eru geðveik!
8
73%
Nei poolmót eru asnaleg :(
0
No votes
Tímasetningin hentar mér ekki, annars mundi ég mæta!
3
27%
 
Total votes : 11

POOLMÓT BMWKrafts - BREYTING Á TÍMA

Postby Gunni » Mon 08. Mar 2004 16:12

Hið árlega poolmót BMWKrafts verður haldið á BILLIARD BARNUM FAXAFENI 13. mars 2004 kl. 19:30

Nú hver hver að verða síðastur. Skráning á poolmótið er í fullum gangi og lítur út fyrir hörkumót. Öllum er velkomið og taka þátt, og ekki láta það stoppa ykkur ef þið haldið að þið séuð ekki góð í pool. Það er nefnilega bjór í spilinu og þeir reyndari eiga það til að sötra hraðar því þeir halda að þeir vinni hvorteðer.

Endilega svarið í pollinum. Svo vill ég sjá alla þá sem ætluðu pottþétt að mæta skv. þessum þræði: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 97&start=0 skrá sig og taka þátt.

Meðlimir BMWKrafts greiða aðeins 700 kr. Þátttökugjald en aðrir 1.000 kr.
Millifærist inn á reikning 315-13-7354 (kt. 020274-4689). Látið nafnið ykkar fylgja með millifærslunni.


Athugið að hægt er að skrá sig í BMWKraft með því að smella hér

Vinningarnir í mótinu eru glæsilegir og skiptast þeir svona:

1. sæti

Pool meistari BMWKrafts fær glæsilegan bikar til eignar. Einnig fær hann glæsilegan vinning frá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum og stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.


2. sæti

Sá/sú sem hreppir annað sætið fær glæsilegan vinning frá Tækniþjónustu Bifreiða ásamt því að fá stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.


3. sæti

Sá/sú sem hreppir þriðja sætið fær stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.


Hægt verður að versla bjór og hamborgara á vægu verði á staðnum.

Sjáumst öll fersk á pool mótinu laugardaginn 13. mars kl 19:30

Ef einhver hefur eitthvað útá tímasetningu að setja, og hefur tillögur að öðrum tíma má sá hinn sami endilega senda mér EP eða EMAIL.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby oskard » Sun 14. Mar 2004 05:21

æegg þakka bara fyruir feeaujata samkomu, !!! frekar ölvaðuru að sjálfsögðu og hafði bara gaman að :D :D :D
oskard
 

Postby oskard » Sun 14. Mar 2004 05:24

jhmmm, þetta var víst pool mót ekki samkoma :drunk:

svo óskum við að sjálfögðu vinningsh0fum til hamingju,

Schhhuulliii730 í sæti nr 1 !
HlynURsT328 í stæi nr 2 ¨
og stebbi325turbomega í sæti 3 !! ;)
oskard
 

Postby Haffi » Sun 14. Mar 2004 06:06

HYEYYYH1! ekki gleyma mér :D

Haffi 4. sæti eftir þvílíka baráttu 8)

En þetta var snilldar poolmót og mig er strax farið að hlakka til næsta árs :D
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55


Return to Samkomur

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests