Sælir drengir...
Þannig er mál með vexti að mér býðst eftilvill eitt stk 7 BMW til kaups núna.
Þetta er 730 1991 árg, mjög fallegur og allt það.
Hann er ekinn 190 þús kílómetra, og aldrei verið tekin upp vél né skipting. Það kostar nú sitt að láta taka upp skiptinguna ef hún fer, og sömuleiðis ef vélin fer að vera með einhverja stæla.
Hver er ykkar reynsla á þessum bílum ? Mynduð þið vera hræddir við að kaupa svona 'mikið' ekinn original BMW ?
Og annað mál, hvað mynduð þið borga fyrir svona bíl ca$h ?
Aftur tek ég fram að hann er óaðfinnanlegur í akstri, og alveg stráheill einsog staðan er í dag.

