arnibjorn wrote:En Hemmi þú ert svo sætur með gleraugu

Ég er hrikalega myndarlegur _ALLTAF_
neinei, ég hef notað gleraugu frá 7 ára aldri og er með -6.00 og -6.25
t.d. ef ég gleymdi hvar ég lét gleraugun frá mér þá er ég bara fuck'd, svo stunda ég það mikið af íþróttum að ég er alltaf eitthvað með linsur í augunum og orðinn langþreyttur á því veseni
Hef skoðað þetta fram og til baka og það virðist vera að þeir einu sem hafa lent í einhverju veseni með þetta hafa verið með hornhimnu undir meðallagi og/eða ekki farið nógu vel með sig eftir aðgerðina.
Ég fór í forskoðun hjá Sjónlag en var ekki alveg búinn að kynna mér þetta nóg þannig ég spurði eiginlega ekkert

og á pantaðan tíma 19. ágúst í laser

er búinn að vera á báðum áttum alveg heillengi en allir sem ég hef talað við lofa bæði lasersjón og sjónlag, er eiginlega kominn á það aftur að skella mér bara.

EDIT:
Eina sem ég er hræddur við er að rökkursjónin verði í algjöru drasli eftir þetta, hvernig er hún hjá þér ZedIII