Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 06. Aug 2010 17:00

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby fart » Sat 07. Aug 2010 08:24



Hann má alveg hneykslast á þessu fyrir mér, ég hneykslast t.d. massíft á hinu og þessu, en það að seðlabankinn fái lögfræðiálit um að lánin séu líklega óheimil skiptir bara engu anskotans máli, Það er ekki seðlabankans að segja til um það hvað er ólöglegt eða löglegt í svona málum, það er ekki þeirra að birta öll lögfræðiálit sem þeir fá, það er þeirra að reyna að vernda efnahag landsins, þeir voru bara að fá álit á þessu til að þeir gætu hugsanlega búið sig undir áföll sem fylgdu mögulegum málaferlum (og málaferlum sem voru í gangi) hvað voru mörg lögfræðiálit sem sögðu að þetta væri löglegt? Hvað ef héraðsdómur hefði fundið út að þetta væri allt löglegt, og svo hæstiréttur? Alveg shitloads af lögfræðiálitum hingað og þangað um hina og þessa hluti, líklega eins misjöfn og lögfræðingarnir eru margir, en þau eru bara álit, og oft stangast þau á. Ég fæ eitt og þú annað og svo látum við dómstólana skera úr um hvað er rétt og rangt. Það vissi enginn hver niðurstaða dómstóla yrði.

Auðvitað hefði ríkið átt að láta skera úr um þetta yfrir löngu auk þess sem eftirlitsstofnanir hefðu átt að stöðva þessa lánveitingu (fjármálaeftirlit t.d.) eða í versta falli ganga úr skugga um það að þetta væri löglegt, og svo stöðva. Þetta var fyrir framan menn í fjölda ára án þess að einhver gerði eitthvað, allir rosa happy go lucky skuldsettir til helvítis í röngum myntum, party on Wayne...

Það er alveg magnað hvað menn gátu mokað þessum lánum út án þess að einhver pældi í því hvort að þetta væri löglegt eða ólöglegt, og það voru að stórum hluta þessi lán sem settu Ísland á rassgatið, og hugsanleg aðal ástæða þess að við erum þar sem við erum í dag. Hvar fengu menn t.d. peningana til að lána þessar erlendu myntir? jú í útlöndum með lántöku (sölu skuldabréfa í bílförmum) eða með innistæðusöfnun. Júlli úti í bæ með gengiskörfuna á krúsernum á ICESAVE og öðru sliku að þakka að hann gat dregið Jenafjármagnaða fellihýsið upp í Húsafell á gengiskörfukrúsernum.

Það var líka alveg magnað hvernig fólk gat sætt sig við að taka svona ótrúlega áhættu að skuldbinda sig í öðrum gjaldmiðli en tekjuflæðið þeirra var, eða undirliggjandi eign var verðmetin á á heimamarkaði, en auðvitað hefðu bankarnir líka átt að skoða tekjuflæði viðkomandi og ef þeir hefðu séð að viðkomandi persóna væri ekki með neina innkomu í JPY/CHF eða að viðkomandi eign væri staðsett erlendis og því veðhæfið í sömu mynt og lánið. Það er ekki nóg að bíll sé framleiddur í Japan til að menn geti fengið lán í Jenum. Ótrúleg hugsanavilla, sama hugsanavilla og setti baltic löndin, og stóran hluta af austur Evrópu á rassgatið. Ég spurði alla í minni fjölskyldu sem annaðvhort hugsuðu um að taka gengistryggð lán eða tóku þau hvort að þau væru með tekjur í sömu mynt.. svarið var sjaldan "jú að fullu".

Í dag keppast menn um að rífast yfir forræðishyggju stjórnvalda, að takmarka t.d. þann gjaldeyri sem fólk getur fengið? En sama fólk er síðan að skammast í því að þeim hafi ekki verið bannað með lögum að taka lánin sem það tók, pínulítil kaldhæðni í því en auðvitað eru það yfirvöld í hverju landi (eftirlitsstofanir og slíkt, eins t.d. Tollurinn) sem hafa það hlutverk að vernda almenning fyrir hlutum sem geta komið almenningi í vandræði.

Auðvitað er eðlilegt kenna bönkunum/lánafyrirtækjum um það hvernig fór, enda voru það þau sem lánuðu þetta og auðvitað hefðu menn átt að vanda sig miklu meira og fá skorið úr því hvort að þetta væri löglegt áður en þeir fóru af stað. Hugsanlega gerðu menn það þannig að þeir fengu lögfræðiálit sem sagði að þetta væri í lagi. Allavega var enginn sem fetti fingur út í þetta og meira að segja þáverandi viðskiptaráðherra fór á kúpuna persónulega útaf gengistryggðu láni ef marka má fréttir, sem er skelfilegt fyrir hann eins og aðra í sömu sporum þar sem að maðurinn er stórfjölskyldumaður, og á ekki auðvelt með að fara út á almennan vinnumarkað. Enginn hefði tekið þessi lán ef bankarnir hefðu ekki boðið upp á þau, það er ófrávíkjanleg staðreynd.

Það virðist vera, ef eitthvað er að marka umræðuna, að menn hafi bara vaðið áfram með þessi lán, lánað vinstri hægri án þess að vera 100% á því að þetta væri löglegt, sem er í meira lagi óábyrgt, en hugsanlega var þetta allt saman byggt á lögfræðiáliti, og þá vitum við hvers virði þau eru..... Sama átti að margra mati við þegar að Landsbanki og Glitnir eltu Kaupþing í húsnæðislánum. Mig minnir að Þjónustufulltrúar hinna bankana hafi notað heimasíðu Kaupþings til að reikna út lánin sem þeir voru að selja sínum viðskiptavinum, Þar sem að bankinn þeirra var engann vegin undirbúinn í að lána svona langt húsnæðislán, þannig var geðveikin algjör, menn máttu ekki missa af lestinni.

Hæstiréttur er eina endanlega niðurstaðan í þessu, héraðsdómur er það ef menn ákveða að fara ekki með málin lengra. Lögfræðiálit eru bara álit.

Ranting session over.. :lol: farinn að ná mér í kaffi.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby Giz » Sat 07. Aug 2010 09:38

Rokkstig á Fart! 8)

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Sat 07. Aug 2010 09:46

Er samt ekki aðalmálið að þessi áhætta var ljós áður en ríkið setti 200 ma í bankanna (eigninfjárframlag til NBI og víkjandi lán til hinna). Þetta getur kostað ríkið einhvern slatta.

Sammála því að það er ekki hægt að birta öll lögfræðiálit enda eru þau bara álit en klúðrið liggur í að endurreisa bankana á þessum veika grunni.

Party on Garth.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Sat 07. Aug 2010 12:17

fart wrote:Það er ekki seðlabankans að segja til um það hvað er ólöglegt eða löglegt í svona málum, það er ekki þeirra að birta öll lögfræðiálit sem þeir fá, það er þeirra að reyna að vernda efnahag landsins, þeir voru bara að fá álit á þessu til að þeir gætu hugsanlega búið sig undir áföll sem fylgdu mögulegum málaferlum (og málaferlum sem voru í gangi) hvað voru mörg lögfræðiálit sem sögðu að þetta væri löglegt?


Það er einmitt málið að það virðast allir í stjórnkerfinu hafa litið svona á málið - "ekki mitt að gera neitt"
og þess vegna rak allt á reiðanum á meðan. Þetta blessaða íslenska embættismannakerfi er með öllu
óhæft eins og reynslan sýnir.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Wed 11. Aug 2010 11:02

bimmer wrote:Það er einmitt málið að það virðast allir í stjórnkerfinu hafa litið svona á málið - "ekki mitt að gera neitt"
og þess vegna rak allt á reiðanum á meðan. Þetta blessaða íslenska embættismannakerfi er með öllu
óhæft eins og reynslan sýnir.



Sáuð þið viðskiptaráðherra í gær?

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472253/2010/08/10/0/

ótrúlegt viðtal.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby jonthor » Wed 11. Aug 2010 11:05

Sammála Giz, rokkstig á Fart.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Wed 11. Aug 2010 11:08

Zed III wrote:
bimmer wrote:Það er einmitt málið að það virðast allir í stjórnkerfinu hafa litið svona á málið - "ekki mitt að gera neitt"
og þess vegna rak allt á reiðanum á meðan. Þetta blessaða íslenska embættismannakerfi er með öllu
óhæft eins og reynslan sýnir.



Sáuð þið viðskiptaráðherra í gær?

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472253/2010/08/10/0/

ótrúlegt viðtal.


Já algjör steypa.

Sumir kalla þetta kannski bara rokk :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Wed 11. Aug 2010 11:40

menn geta aldrei tekið ábyrgð á neinu eða sagt vera ósattir og ætla að breyta vinnubrögðum og hýða einhvern opinberlega.

Seðlabankans að ákveða bla bla...

seðlabankinn átti að bla bla bla...

seðlabankinn er fullfær bla bla bla...

Helvítis rolur sem vinna í þessu stjórnkerfi okkar.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Wed 11. Aug 2010 11:54

Zed III wrote:menn geta aldrei tekið ábyrgð á neinu eða sagt vera ósattir og ætla að breyta vinnubrögðum og hýða einhvern opinberlega.

Seðlabankans að ákveða bla bla...

seðlabankinn átti að bla bla bla...

seðlabankinn er fullfær bla bla bla...

Helvítis rolur sem vinna í þessu stjórnkerfi okkar.


Það var logið upp í opið geðið á okkur alveg fram á síðasta dag fyrir hrun.

Svo haldið áfram eftir hrun að ljúga eins og ekkert hafi í skorist - annað
fólk að vísu í stólunum - en sama ruglið.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby fart » Wed 11. Aug 2010 12:57

bimmer wrote:
Zed III wrote:
bimmer wrote:Það er einmitt málið að það virðast allir í stjórnkerfinu hafa litið svona á málið - "ekki mitt að gera neitt"
og þess vegna rak allt á reiðanum á meðan. Þetta blessaða íslenska embættismannakerfi er með öllu
óhæft eins og reynslan sýnir.



Sáuð þið viðskiptaráðherra í gær?

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472253/2010/08/10/0/

ótrúlegt viðtal.


Já algjör steypa.

Sumir kalla þetta kannski bara rokk :lol:

Á þetta að vera skot á mig :lol:

Annars fannst mér nú landbúnaðarráðherra setja einn djöful í buxurnar og langt upp á bak í sama fréttartíma.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Wed 11. Aug 2010 18:53

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby fart » Thu 12. Aug 2010 08:43

bimmer wrote::whistle: :lol:

Hér er áhugaverð lesning:
http://eyjan.is/2010/08/11/gunnar-tomas ... engislana/

Ég veit samt ekki alveg hvað ég og viðskiptaráðherra eigum sameiginlegt, ég hef t.d. verið einn helsti anstæðingur þess að Íslenska þjóðin væri að skuldsetja sig í erlendu upp fyrir eyru. Þessi þráður minn sýnir það frá byrjun.

En fyrir utan það er ég nú nett sammála Gunnari.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Thu 12. Aug 2010 14:34

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby fart » Thu 12. Aug 2010 14:44


Rokkstig á Marinó ;)
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 69 guests