Þá er þessi búinn að vera ónothæfur í ca mánuð.
Keypti nýjan vatnskassa í hann um daginn og fór út að keyra. Fannst hann vera eitthvað furðulegur og fór að skoða í vélarsalnum, tók þá eftir að mótorpúðinn bílstjórameginn var farinn í tvennt og fór heim með hann. Eftir nánari eftirgrennslan þá hvarf hitaskjöldur af mótorpúðanum farþegameginn og bráðnaði polypúðinn í drasl

sem varð þess valdandi að hinn gaf sig líka.. ásamt að vélin var búin að færast áfram um ca 3 cm. Númerin af og lögð inn fram að næsta vor!
Ákvað að taka mótorinn uppúr þar sem ég þarf að fara með gírkassann í Áliðjuna til að sjóða smá bút á festinguna fyrir gírkassapúðana sem brotnaði af þegar púðarnir gáfu sig.
Snillingarnir Aron Andrew, Axel Jóhann og félagi Axels hjálpuðu til við þetta í gærkvöldi
Bíllinn kominn uppá lyftu kl 21 í gærkvöldi og rúllaði aftur út kl 24, nokkrar myndir fyrir þá sem hafa áhuga að skoða (hálf leiðinleg update þegar engar myndir eru)

Mættur á lyftuna góðu

Sést hérna hvernig mótorpúðinn var orðinn

Pústið undan og drifskaft

Verið að losa rafkerfi, hosur og tilheyrandi

Master mech að verki

Á leiðinni uppúr

Menn í sjokki yfir fegurðinni

Púðinn góði

Eitt stk Axel afl

Eiginlega alveg viss um að þetta skeði því það er ekkert lok yfir þar sem kveikjan er venjulega

Og verið að tjassla húddinu aftur á

Tæp 800hö þarna
Planið er svo að þrífa vélarsalinn vel, mála hann ef þörf er á, þrífa og mála blokkina, koma í veg fyrir olíuleka, E36 rack, færa forðabúrið fyrir stýrisdæluna og láta þetta líta vel út. Einnig ætla ég að kaupa AKG polypúða fyrir vél og gírkassa ásamt að græja nýja hitaskjöld
