bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 15:54

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 64 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 14:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
arnibjorn wrote:
Geirinn wrote:

Hvað þýðir þetta? :lol:

löggimann wrote:
„Spurningin er alltaf sú hvort þetta er eitthvað mál eða eitthvað annað. Það verður að fá botn í það,“

Það virðist sem Ólafur lögga sé ekki sannfærður um að það sem gerst hafi sé annaðhvort satt eða eigi heima á borði lögreglunnar.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 14:54 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
Ég bara skil ekki þetta drull yfir lögguna sífellt. Hvað eiga þeir eiginlega að gera umfram það sem þegar hefur verið gert?

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:10 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
drolezi wrote:
Ég bara skil ekki þetta drull yfir lögguna sífellt. Hvað eiga þeir eiginlega að gera umfram það sem þegar hefur verið gert?

Tryggja öryggi landsmanna? Nei djók :lol:

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:16 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
drolezi wrote:
Ég bara skil ekki þetta drull yfir lögguna sífellt. Hvað eiga þeir eiginlega að gera umfram það sem þegar hefur verið gert?

Þú sem lögreglumaður sérðu ekkert athugavert við aðgerðir lögreglunar í þessu máli ef þetta er satt?

Eða veist þú kannski eitthvað sem að við vitum ekki? Er þetta bara bull frásögn og löggan gerði allt rétt?

_________________
Enginn bíll!

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
drolezi wrote:
Ég bara skil ekki þetta drull yfir lögguna sífellt. Hvað eiga þeir eiginlega að gera umfram það sem þegar hefur verið gert?

Fyrirgefðu, en umfram hvað ?

Það virðist vera í svona málum að höfðinu sé oft stungið í sandinn og beðið eftir að málin leysi sig sjálf, sem þau gera eflaust oft vegna þess að fólk hefur ekki orku eða þor í að standa svona baráttu til lengdar.

Ég skil ekki þessa vörn sem þú ferð í þegar þér finnst störf lögreglunnar gagnrýnd. Staðreynd þessa máls virðist vera sú að þetta hafi viðgengist í tvö ár án þess að fólkið hafi fengið viðunandi úrlausn mála sinna og get ég trúað því að þessi fljölskylda sé orðin þreytt á ástandinu.

Ef þú ert að vitna í mín orð, sem ég geri ráð fyrir þar sem ég túlkaði orð lögreglumanns, þá get ég á móti, með fullum hug sagt að hef ég ekkert á móti lögreglunni, né störfum hennar, en eitthvað er að kerfinu.

Það skal tekið fram að ég tengist þessari fljölskyldu á engan hátt.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:42 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
arnibjorn wrote:
drolezi wrote:
Ég bara skil ekki þetta drull yfir lögguna sífellt. Hvað eiga þeir eiginlega að gera umfram það sem þegar hefur verið gert?

Þú sem lögreglumaður sérðu ekkert athugavert við aðgerðir lögreglunar í þessu máli ef þetta er satt?

Eða veist þú kannski eitthvað sem að við vitum ekki? Er þetta bara bull frásögn og löggan gerði allt rétt?

Ég bara sé ekki hvað þeir áttu að gera öðruvísi. Eins og er búið að koma fram í nokkrum linkum hérna þá er búið að taka skýrslur af öllum aðilum, vitnum og fleirum. Miðað við það sem kemur fram í þessu bloggi þá er sett út á að það hafi ekki verið leitað að meisbrúsa. Í fyrsta lagi sýnist mér á þessum skrifum að lögregla hafi einfaldlega ekki verið kölluð til, heldur þau farið upp á lögreglustöð. Í öðru lagi þá eru engar líkur á að finna brúsann og því fáránlegt að eyða tíma í slíka leit (hvar ætti svosem að leita?).

Svo er talað um að lögreglan hafi verið kölluð til eftir líkamsárás og hún hafi ekki viljað gera neitt. Þó er talað um að rætt hafi verið við fólkið, punktar teknir og málsaðilum leiðbeint. Hvað vildu þau meira? Handtökur? Húsleitir? Líkamlega refsingu á staðnum?

Reyndar er þessi bloggfærsla svo illa skrifuð og lituð af hatri að hún er með öllu ómarktæk.

Ég veit ekki eitthvað sem þið vitið ekki en þetta er greinilega bull frásögn. Varðandi aðgerðir lögreglu ætla ég ekki að halda því fram að hún hafi gert allt rétt, því ekki var ég á staðnum, en út frá þessum lestri get ég einfaldlega ekki séð hvað hún hefði átt að gera öðruvísi.

Geirinn wrote:
Ég skil ekki þessa vörn sem þú ferð í þegar þér finnst störf lögreglunnar gagnrýnd. Staðreynd þessa máls virðist vera sú að þetta hafi viðgengist í tvö ár án þess að fólkið hafi fengið viðunandi úrlausn mála sinna og get ég trúað því að þessi fljölskylda sé orðin þreytt á ástandinu.

Þegar ég er ósammála einhverju þá læt ég vita af því. Hvort sem það er vörn eða eitthvað annað finnst mér ekki skipta máli. Frásögnin stiklar á sirka 4 atriðum. Bílskúrsbyggingin og sláttuvélahávaðinn fyrir 2 árum. Svo þessi tvö slagsmál núna í júlí. Ég get ekki séð það sem eitthvað sem hafi "viðgengist í 2 ár".
Vel má vera að hrópað hafi verið að þeim og nágrannarnir verið með dónaskap á þessum tíma, en er það eitthvað sem á að vera á borði hjá lögreglu?

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Ég myndi reyna að setja upp falda myndavél, ekki beina stafrænni í smettið á þeim.

_________________
Image

Last edited by SteiniDJ on Fri 23. Jul 2010 17:14, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
drolezi wrote:
Ég veit ekki eitthvað sem þið vitið ekki en þetta er greinilega bull frásögn.

Magnað að þú getir haldið þessu fram.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 15:57 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
bimmer wrote:
drolezi wrote:
Ég veit ekki eitthvað sem þið vitið ekki en þetta er greinilega bull frásögn.

Magnað að þú getir haldið þessu fram.

Skrifin dæma sig sjálf:
Quote:
Sigurður Stefánsson (heimilisfaðirinn) Af greinahöfundi talinn vera þekktur ofbeldismaður, þjófur og geðsjúklingur.

Quote:
Eitt af því sem þau stunda er að kalla ókvæðisorð að hjónunum, kalla þau dópista (eins og dóttur sína)

Quote:
Thelma Þorbjörg er lögfræðinemi við lagadeild Háskóla Íslands. Gæfuleg viðbót þar í stétt lögfræðinga Íslands.

Quote:
Ekki get ég ímyndað mér hver vill taka myndir af jafn ljótri og óaðlaðandi skinku og Margréti Lilju berbrjósta. Það væri nú ljóta óeðlið.

Quote:
Skar hann sig í handlegginn til að geta borið það upp á unga manninn að sá hafi ráðist á sig með hnífi. Slíkur er sjúkleiki Sigurðar Stefánssonar. Hvern skyldi hann skera næst? Litla barnið?

Quote:
Ég hef grun um að Sigurður hafi óeðlileg vinatengsl inn í Lögregluna en það er ekki eðlilegt að tugir lögreglumanna séu settir í að rannsaka veggjakrot á hús fyrrum forstjóra Skeljungs þegar svona mál sem gætu endað með mannsmorði eru látin liggja sem dauð væru. Ég ætla að finna út úr hver þessi hugsanlegu tengsl eru og mun segja frá þeim hér finni ég eitthvað.

Quote:
Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir (dóttirin) Sögð vera lygasjúk, geðsjúk og mjög ofbeldissinnuð.

Quote:
Stefán Ágúst Sigurðarson (Sonurinn) Af greinahöfundi talinn vera Þjófóttur, orðinn þekktur ofbeldismaður og mjög lyginn.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:03 

Ef þessi geðveiki er í gangi þarna þá getur það bara vel passað að þessi
skapgerðareinkenni eigi við fólkið.

Það er bara magnað að þú getir afgreitt þetta allt sem bull.

Kannski þarf þetta að stigmagnast í meira og alvarlegra ofbeldi - jafnvel mannsdráp til
þess að þetta sé nógu borðleggjandi.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Ég verð samt að taka undir með droleza, óháð því hvað af þessu er satt og ekki, þá er frásögnin langt frá því að vera hlutlaus og ber því að taka með saltkorni eins og sagt er :?

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
dabbiso0 wrote:
Hér er víst frásögn frá nákomnum aðila
http://vrovl.blogspot.com/2010/07/siblint-ofbeldisfolk-og-raalaus.html
Og sést greinilega hver er með fyrsta kommentið :P

Ég get ekki séð að þessi texti sé skreyttur, né nafnlaus eða skrifaður af óvenjulegu hatri.

Mér finnst þessi fjögur atriði ættu að nægja til að gera eitthvað í málinu, þá sérstaklega barsmíðunum og piparúðaárásinni. Hvort þetta hefur viðgengist allan tímann hlýtur að vera túlkunaratriði, þetta hófst fyrir tveimur árum og stendur enn í dag. Það er ýmislegt hægt að gera þó það sé ekki gert með vopnum eða barsmíðum.

Sem betur fer er eitthvað að gerast í málinu, eitthvað er betra en ekkert. Ég set hins vegar spurningarmerki við hversu langt málið fékk að ganga áður en ástæða þótti til að skakka leikinn.

Það hlýtur að vera last resort að henda prívat málum svona á netið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:20 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
bimmer wrote:
Ef þessi geðveiki er í gangi þarna þá getur það bara vel passað að þessi
skapgerðareinkenni eigi við fólkið.

Það er bara magnað að þú getir afgreitt þetta allt sem bull.

Kannski þarf þetta að stigmagnast í meira og alvarlegra ofbeldi - jafnvel mannsdráp til
þess að þetta sé nógu borðleggjandi.

Það er auðsjáanlegt hversu lituð frásögnin er og því ómarktæk. Ef hún er ómarktæk þá er hún bull. Það má vel vera að þetta sé allt satt, en meðan þetta er skrifað á þennan hátt þá myndi ég ekkert mark taka á þessu.

Nógu borðleggjandi? Nógu borðleggjandi fyrir hvað? Lituð bloggfærsla um manndráp er alveg jafn ómarktæk og lituð bloggfærsla um heiftúðlegar nágrannaerjur og því ekkert meira borðleggjandi.

Við skulum hafa það hugfast að ég er búinn að vera að vitna í þá tengla sem fram hafa komið á spjallinu. Ég er semsagt að leggja mat á frásögn sem þar kemur fram. Svo það fari ekki á milli mála þá tengist ég málinu ekki á neinn hátt.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:22 

Halló??? Þarf þetta að vera framsett á fallegu stofnanamáli til að þetta sé marktækt???
Skiptir innihaldið engu máli heldur framsetningin til að þú takir afstöðu????

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 23. Jul 2010 16:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Það er minnsta mál að setja eitthvað malbik á einhverja bloggsíðu og fá svo vini sína til að senda tengla á hana útum allt ef manni langar að búa til góða sögu. Það eru tvær hliðar á öllum málum og það er nú betra að fara varlega í að dæma fólk eftir að hafa heyrt bara aðra hliðina.

Hver man ekki eftir sögunni um helv.. hundinn sem átti að hafa verð misþyrmt en reyndist svo tóm lygi.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 64 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group