Alpina wrote:
Hjalti_gto wrote:
Held að maður væri nú fyrir löngu búin að bjóða nokkrum stórum "Vinum" sínum í heimsókn ef maður ætti svona nágranna..
Held að Hjalti hafi hitt á þá leið sem ég tel að svo komnu að sé eina úrræðið ,, en er mð öllu ólögleg ,,
því miður af lýsingum að dæma er það eina sem þetta fólk skilur ,, eigin meðul
tel að brútal aðgerðir af hálfu aðila sem eru vanir að fást við álíka hyski gætu borið tilætlaðann árangur,, fyrst með vinsamlegum fundi .. ef ekkert hlýst af því
þá fulla ferð

Ég var einmitt að hugsa þetta á þessa leið líka..., eitthvað verður þetta fólk að gera.
Fólk verður að geta gengið að híbýlum sínum áhyggjulaust, en fróðlegt væri að fá hina hlið málsins upp á borðið - því flest mál hafa fleiri en eina hlið.
Það sem mér er ómögulegt að skilja, ef sagan er sönn eins og hún er sögð, afhverju vinir eða vandamenn þessa blessaða fólks (meintra gerenda), benda vinum sínum ekki vingjarnlega á að nú sé nóg komið og hafi verið fyrir löngu. Af lýsingunni að dæma myndi maður grípa inn í mál hjá vini sínum ef maður sæi að hann væri að fara niður svo rangan stíg í lífinu.
Án þess að hafa farið gaumgæfilega yfir fréttamiðla, þá sýnist mér eini miðillinn sem hefur fjallað um málið vera Pressan og spyr ég mig að því afhverju enginn annar hefur fjallað um málið, þar sem flestir fyllast viðbjóði við að lesa þessa lýsingu.
Svona fólk á bara að búa uppi í sveit, þar getur það hagað málum algjörlega eins og það sjálft vill.
Ég vona innilega þeirra vegna, að lausn á þessari deilu finnist sem fyrst, þetta gengur ekki.