Zed III wrote:Hemmi wrote:Zed III wrote:Hemmi wrote:Ég er allavega að fá ranga upphækkun á höfuðstól leiðrétta, svo er bara spurning hvaða vextir verða.
Nei, þú ert að detta í lukkupottin þar sem íslensk lög heimila ekki krónulán með gengistengingu. Þú ert að fá rétta upphæð fellda niður og upphaflega upphæð í krónum setta inn í staðinn.
Afhverju segiru rétta upphæð? Hvernig getur hún verið rétt ef gengistengingin er ólögleg sem hækkaði höfuðstólinn?
Því hún er það sem þú samdir um í upphafi. Þú samdir um að fá myntkörfulán og það er það sem þú fékkst.
Þú trúir nú valla að það sé "rétt" að upphaflegi höfuðstóllinn og upphaflegu vextirnir standi ?
Ég skil þig ekki alveg, á þá ekki að leiðrétta lánin?
Vissulega veit ég að ég var að taka gengislán, hvernig getur rangt verið rétt
Eitt sem mig langar að spyrja þig útí, þar sem mig grunar að þú sért fróður um fjármál.
Segjum að gjaldmiðlarnir sem ég tók lánið í hefðu ekkert breysts, hefðu þá ekki bara þessir lágu vextir gilt? Var það ekki pælingin með að taka þessi lán? Lágir vextir og hugsanleg tímabundin gengisfall?
Voru bankarnir ekki að taka stöðu gegn krónunni? Hefðu bankarnir nokkuð veitt þessi lán vitanadi að krónan myndi styrkjast í framtíðinni?
Annars nenni ég ekki að fara að þræta eitthvað, menn hafa mismunandi skoðanir á þessu
