by Thrullerinn » Thu 22. Jul 2010 20:22
eyjan.is
Lögregla var kölluð til, en sagðist ekki geta aðhafst þar sem orð væri gegn orði. Ekki var leitað að piparúðanum þrátt fyrir ítrekaða beiðni.
Í örvæntingu sinni ákvað fólkið að afla gagna til að sanna söguna sína og tóku það til bragðs að taka upp á myndbandsvél næst þegar svívirðingarnar hófust. Feðgarnir í næsta húsi stukku þá yfir á lóðina, sá yngri réðist að konunni og sparkaði margsinnis í hana liggjandi á meðan faðirinn hélt manninum. Því næst réðust þeir báðir að manninum og misþyrmdu honum. Hann hlaut höfuðáverka og var illa lemstraður eftir árásina.
....
EDIT:
Þegar konan sem á barnið var nýkomin af fæðingadeildinni setti ofbeldisfaðirinn tvær garðsláttuvélar í jaðar lóðar sinnar, rétt við svefnherbergisglugga þeirra og lét þær ganga allan daginn alla daga.
Hann hafði þær báðar á svolítilli inngjöf og lét pústið snúa að húsi þeirra til að valda þeim sem mestum óþægindum og skaða.
Hann ræsti þær upp úr kl. 8 á morgnanna og slökkti á þeim um klukkan 22 á kvöldin, og það gerði hann dag eftir dag, viku eftir viku, algerlega í tilgangsleysi, og bara vegna þess að þau langaði að byggja bílskúr, en þau eru eina fólkið í götunni sem hafa ekki bílskúr.
.....
umræðan er eitt það magnaðasta sem ég hef lesið á internetinu
Carrera4 964 '91