Þannig er mál með vexti að ég er stundum mjög þreyttur eftir fyrstu næturvaktina í nýrri törn. Þá kemur það fyrir að ég gleymi að slökkva ljósin á kagganum og það gerðist einmitt þegar ég kem heim þriðjudagsmorgun. Ég fæ start af nánast nýjum bíl og kaplarnir glóðhitna og nýji bíllinn getur ekki startað og ég fæ minn ekki til að starta, við hættum við og ákveðum að skemma ekki nýja fína apparatið. Svo kom vinnufélagi minn á gamalli Mözdu og reddaði mér starti, allt gekk eins og í sögu og bíllinn rýkur í gang með tilheyrandi ventlaglamri

Vandamálið er að það er enginn snúningshraði, engin klukka, engin ljós í innréttingu og núna koma skilaboð um Motorolíu á Check Panel. Ég er nýbúinn að bæta á olíu og það vantar ekki olíu.
Er rétt að áætla að ég hafi slátrað ótal litlum öryggjum við fyrsta startið ? Þetta böggar mig ekkert því ég nota bílinn alveg minimal en bara klaufalegt og pínu neyðarlegt því að það eru engin geimvísindi að fá start.