hvernig er það ?
núna er þetta ekki banki með neinar innistæður sem þarf að halda.. þá gilda neyðarlögin ekki um þetta og því ættu skuldir ekki að færast á milli nýja avant og gamla

Aron Fridrik wrote:hvernig er það ?
núna er þetta ekki banki með neinar innistæður sem þarf að halda.. þá gilda neyðarlögin ekki um þetta og því ættu skuldir ekki að færast á milli nýja avant og gamla


Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Sezar wrote:http://eyjan.is/2010/07/14/fyrrverandi-eigandi-avant-a-skuldlausum-luxusbil-thratt-fyrir-gjaldthrotid/
Keyrðum á eftir kauða í morgun á Suðurlandsbrautinni.
Skellihlæjandi í gemsanum á Bentleyinum sínum, keyrandi framhjá Avant höfuðstöðvunum.....wonder why![]()

Zed III wrote:Það var nú ekki mikið mál að tryggja allar innistæður fjármagnseigenda í bönkunum en innistæður skuldara hjá lánafyrirtækjunum, það er nú annað mál.
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/vidskiptaradherra-engin-aform-um-ad-abyrgjast-krofur-theirra-sem-ofgreitt-hafa-af-gengislanum
Jónas wrote:Zed III wrote:Það var nú ekki mikið mál að tryggja allar innistæður fjármagnseigenda í bönkunum en innistæður skuldara hjá lánafyrirtækjunum, það er nú annað mál.
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/vidskiptaradherra-engin-aform-um-ad-abyrgjast-krofur-theirra-sem-ofgreitt-hafa-af-gengislanum
Telur þú þetta vera sama hlutinn í stærra samhengi?

fart wrote:Er það ekki bara að því að hann tók ekki erlent bílalán hjá Avant?[/size]

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
fart wrote:Ég get nú varla fallist á þetta sjónarmið, einfaldlega vegna þess að það "fé" sem ríkið notaði til að covera innistæðurnar var réttilega í eigu kröfuhafa bankanna, sbr. skuldabréfaeiganda, sem margir hverjir voru íslendingar. Þeir verða að bíta í það súra eplið að hafa ákveðið að taka minni áhættu fyrir minni ávöxtun með því að setja lausafé í Skuldabréf á t.d. Landsbanka/Kaupþing, sem núna er nánast verðlaust útaf neyðarlögunum og innistæðutryggingum.

Zed III wrote:Ég næ ekki alveg meiningunni með seinni hlutanum á þessu. Útskýrðu þetta aðeins betur.
fart wrote:Zed III wrote:Ég næ ekki alveg meiningunni með seinni hlutanum á þessu. Útskýrðu þetta aðeins betur.
Þeir sem leggja inn pening í banka (innistæður) fá gjarnan hærri vexti en þeir sem kaupa Senior skuldabréf þar sem að Senior bréfin eru rétthærri ef til gjaldþrots kemur. Þau eru tryggð með eiginfé bankans svona álíka og 1. veðréttur. Innistæður eru víkjandi á eiginfé (nánast) þar sem innistæður eru ekki forgangskröfur.
S.s. þeir sem kaupa rétthátt skuldabréf sætta sig við lægri ávöxtun þar sem þeir eru betur tryggðir, og þeir sem eru með innistæður fá hærri ávöxtun út á meiri áhættu.
Neyðarlögin gerðu skuldabréf íslensku bankana nánast verðlaus, kanski að við sjáum á bilinu 10-30% endurheimtur.
Þannig að... ef að amma þín var skynsöm og setti allt spariféð sitt í skuldabréf á t.d. Kaupþing og fékk 5% vexti, en frændi þinn vildi fá 15% og setti þetta því í innlán, mun amma þín bara fá 30% af sínu (MAX) en frændi þinn allt.
Neyðarlögin breyttu goggunarröðinni á mjög ósanngjarnan hátt. Þar lofaði ríkið að borga allar innistæður, líka erlendis, þegar þær hefðu í raun átt að mæta afgangi.
Það eru líka massífar lögsóknir á hendur Íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna í burðarliðnum hjá stórum skuldabréfaeigendum þar sem þeir telja sig hafa verið hlunnfarna (líkt og margir Íslenskir sparifjáreigendur).
Mín skoðun er að þeir sem tóku erlendu lánin eiga rétt á einhverskonar bótum/leiðréttingum frá lánafyrirtækjunum ef dómstólar dæma þannig í málunum, en.. menn eiga þá að þurfa að sækja sinn rétt eins og aðrir til viðkomandi fyrirtækja. Ef menn eru svo óheppnir að viðkomandi fyrirtæki er farið í þrot út af dómunum þurfa menn að sækja bæturnar í gegnum dómstóla. Með því að taka lánin ferð þú í viðskiptasamband við þetta fyrirtæki, tekur áhættuna á þessu sjálfur. Nákvæmlega eins og að ef þú borgar ekki lánið getur Avant/Lýsing ekki sótt greiðslufallið til ríkisins.
Núna kemur bara í ljós hversu margir geta sótt rétt sinn, hvað mörg af þessum fyrirtækjum hafa capital í að borga eitthvað til bara ef þannig verður dæmt.
Fólk sem vildi taka minni áhættu og tók því gamaldags Íslenskra krónu verðtryggingalán á ekki að borga þeim sem tóku erlend lán. Hvaðan haldið þið að peningarnir frá ríkinu komi eiginlega???? Ef að ríkið á að punga út fyrir þessu líka.. þýðir það hærri skatta og álögur, minni þjónustu, menntun...... o.s.frv. Er réttlátt að þeir sem tóku ekki erlent lán borgi það líka?


Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Users browsing this forum: No registered users and 51 guests