bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 11:15

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
PostPosted: Mon 12. Jul 2010 19:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
:thup: :thup:

Í Grikklandi, eftir að hafa komist inn á aðal ástæðu þjóðargjaldþrots Grikkja, a.k.a. nýja þjóðveginn, þurftum við eins og oft áður að finna okkur stað til að pissa á.

Við stoppum á rest-place þar sem afar fátt var, fyrir utan útiklósett sem við ákáðum að nýta okkur.

Haukur (Stanky) vippar sér á karlaklósettið, og þar sem ég var í spreng og enginn annar þarna en við, ákveð ég að sneaka mér inn á kvennaklósettið.

Við blasti blóðpollur á gólfinu á stærð við 12" pizzu, ogégsnérimérviðástaðnum og var fljótur að forða mér.

Haukur stóðst ekki mátið og þurfti að skoða þetta líka,.. þetta voru amk. engar blóðnasir, hvaðsvosem þetta var.


Það er virkilega gaman að fara svona ferðalag, sér í lagi með góðum ferðafélaga. Það þarf þó liggur við að margfalda kostnað og tíma sinnum pí til að fá dæmið til að ganga almennilega upp :)

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 12. Jul 2010 19:54 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Geirinn wrote:
:thup: :thup:

Í Grikklandi, eftir að hafa komist inn á aðal ástæðu þjóðargjaldþrots Grikkja, a.k.a. nýja þjóðveginn, þurftum við eins og oft áður að finna okkur stað til að pissa á.

Við stoppum á rest-place þar sem afar fátt var, fyrir utan útiklósett sem við ákáðum að nýta okkur.

Haukur (Stanky) vippar sér á karlaklósettið, og þar sem ég var í spreng og enginn annar þarna en við, ákveð ég að sneaka mér inn á kvennaklósettið.

Við blasti blóðpollur á gólfinu á stærð við 12" pizzu, ogégsnérimérviðástaðnum og var fljótur að forða mér.

Haukur stóðst ekki mátið og þurfti að skoða þetta líka,.. þetta voru amk. engar blóðnasir, hvaðsvosem þetta var.


Það er virkilega gaman að fara svona ferðalag, sér í lagi með góðum ferðafélaga. Það þarf þó liggur við að margfalda kostnað og tíma sinnum pí til að fá dæmið til að ganga almennilega upp :)


Já, vá, var búinn að gleyma þessu maður. Djöfull var þetta freaky og svo var miði á einhverjum ljósastaur þarna sem sagði að þetta væri "turf" einhverskonar "mafíuhóps". Við vorum fljótir í burtu þaðan.

Það var líka einnig gaman að keyra í gegnum allskonar veður.

Á einum stað á Ítalíu rigndi svo mikið að rúðuþurrkurnar héldu ekki við og það var KOLNIÐAMYRKUR og við þurftum að hægja á ferðinni niður í svona 60km/h

Í Pisa var 20°c hiti og bolaveður, bara næs.

Uppi á fjöllum í Grikklandi snjóaði - djöfull var góð tilfinning að vera á vetrardekkjum þar sem var búið að pilla naglana úr.

Veðrið í Makedóníu er furðulegt - það er ALDREI rok þarna. Eða, þeir kalla rok 8m/s.

Svo var eitt líka í Grikklandi þar sem við vorum án gríns alveg áttaviltir og við vissum ekkert hvar við vorum. Við stóluðum á GPS tækið sem virkaði ekki og ekki með nein kort og ekki hægt að kaupa kort á bensínstöðum og enginn talaði ensku. Það fyndna við þetta er að við þekkjum báðir Grísk/íslenskann mann sem er góður félagi okkar og okkur datt EKKI í hug að hringja í hann og biðja hann um að tala við fólk og leiðbeina okkur eða jafnvel þegar við vorum að panta matinn. Föttuðum þetta löngu eftir á.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 12. Jul 2010 21:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Snilldar pistill, þetta hefur verið svaðilför. :thup:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Jul 2010 09:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
zazou wrote:
Snilldar pistill, þetta hefur verið svaðilför. :thup:



Segðu

Hljómar ekkert smá spennandi að fara svona 8)

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Jul 2010 10:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Það vantar kannski myndirnar til að leiða mann betur í gegnum ferðina, á reyndar eftir að sækja myndirnar sjálfur - maður man þetta einhvernveginn betur ef maður scrollar í gegnum myndirnar.

Frekar "fyndið" líka að bíllinn gafst upp í 'no-mans-land', þ.e. á milli landamæra Grikklands og Makedóníu.

Bíllinn var búinn að láta dálítið skringilega síðasta part leiðarinnar, en þó án þess að það kæmi til þess að við þyrftum að stoppa. Á einhverjum tímapunkti fannst okkur bíllinn halda aftur að sér niður brekkur, og var það m.a. ástæðan fyrir því að Haukur fór að prófa aðeins bremsurnar, sem er eflaust ástæða þess að trukkabílsstjórinn fyrir aftan okkur fékk 'fitzið' - okkur fannst þetta þó mjög sakleysislegt hjá okkur og því vorum við hálf skelkaðir.

Við stoppuðum þá á bensínstöð til að athuga hvað væri eiginlega að, en komumst ekki að neinu, enda eina bilanagreiningin sem við gátum notað eyrun og augun. Það var orðið dimmt á þessum tímapunkti og lítið að heyra og sjá þar sem einkennin voru ekki stöðug.

Þegar við áttum eftir c.a. 30 mín af ferðalaginu að Makedóníu þá fór bíllinn að hætta að hlaða sig, en við spáðum ekki of mikið í það á þeim tímapunkti (sem við hefðum eflaust átt að gera), en við vorum svo fastir á því að komast yfir landamærin að skjóturinn var látin drífa síðustu kílómetrana.

Þegar við vorum í 'duty free' á milli landamærana þá fór bíllinn að hósta, prumpa og ropa og þar sem bíllinn hlóð sig ekki þá ákváðum við að halda honum í gangi, enda klukkan það margt og kolniðamyrkur (og við fjarri þeim stað sem við gistum á) og ekki þótti viturlegt að drepa á bílnum, þar sem ljóst var að bíllinn færi ekki í gang aftur.

Eftir smá stund kafnaði bíllinn og við þurftum að bíða eftir dráttarbíl :( Skemmst er frá því að segja að €€€€€€€€... :aww:

Dobrjeiv, a.k.a. BMW umboðið í Skopje vildi meina að einhver hosu-fjandi læki - beint ofan á altenatorinn, sem drapst :bawl:

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Jul 2010 10:44 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
Geirinn wrote:
Frekar "fyndið" líka að bíllinn gafst upp í 'no-mans-land', þ.e. á milli landamæra Grikklands og Makedóníu.


Hef keyrt þetta milljón sinnum og þarna á þessum landamærum eru oft allsvakalegar raðir, og miklu meira en það. Stundum skreppa líka Grísku landamæraverðirnir í "verkfall" sona uppá fjörið.

Þetta Duty Free þarna er reyndar magnað apparat líka. Casinoið við hliðina Makedóníu megin er líka bráðfyndið apparat.

G

_________________
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group