Nú fer að koma tími á ný bílakaup, E28 fínn en langar í eitthvað nýrra og halda mig á því.
Vandamálið er bara að ég hef ekki grænann hvað ég á að fá mér.
Hinir ýmsu skilmálar sem fylgja, en breytast þó eftir því hvernig skapi ég er í
Verð að láta skynsemina ráða og því eru mjög drykkfelldir bílar ekki inn í myndinni, er með þungan bensínfót.
Hef ekki verið sá heppnasti á þessu bílabraski mínu og hafa farið alltof margir þúsund krónurnar í viðgerðir og vesen,
einnig orðinn vel þreyttur á því að verða óvænt stopp hér og þar eða að þurfa að leggja í brekku til að koma bílnum í gang.
Alltaf viss húmor í að keyra um á sérstökum eða ljótum bílum en það verður þreytt þegar horft á bílinn útaf ljótleika.
Ætli það sem ég sé að reyna að koma út úr mér hérna sé það að mig langar að spyrja ykkur um álit hvað sé svona álitlegast í íslensku flórunni sem uppfyllir eftirfarandi skilmála hér fyrir ofan, eða rándýr í rekstri en má samt vera með smá fútti (
ekki að drepast úr aflleysi).
Compact er ekki til umræðu
Hafði hugsað að reyna að fara ekki yfir 1.1 milljón.
Hvað er sniðugt? Skynsamlegt og flott fyrir 21 árs einstæðan mann.
Romsa en það vill stundum koma eftir nokkra öl.
Mbk
Atli Þór
_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard