bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 15:15

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 4 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sat 10. Jul 2010 14:43 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 04. Sep 2007 19:33
Posts: 54
Lenti í smá atviki um daginn, lét mappa bílinn rétt fyrir bíladaga og hann virkaði fínt eftir það. Hann hafði fyrir map verið að missa allt boost, bara eins og hann væri að blása beint út. Sem lagaðist ef maður stoppaði, drap á og setti í gang aftur. Allt í lagi með það, gerðist voða sjaldan. Eftir mappið var ég voða ánægður, sófinn farinn að virka eins og ég veit ekki hvað. Brosti hringinn bara. Fór norður og ekkert ves. Svo vildi ég sjá hvort ég hefði e-ð í aðra bíla. Spyrnti við 2 bíla, fyrstu 1-2 runnin voru fín, 0-170. Reyndar mega svekktur yfir að hann virkaði ekki neitt. :lol: Svo tók ég run við næsta, og þá fór hann að missa boost á ca 120-30. Fínn upp að því, svo bara dó hann. Gerði þetta 2-3 í röð þannig að ég hætti því bara. Keyrði alla bíladaga no problem. Fer svo suður og er í bænum í einhvern tíma, ennþá no problem.

Fer svo á höfn síðustu helgi, þá fór hann að missa boost bara meðan ég var á steady 90 á cruise control. Ég nennti ekki að vera að stoppa þannig ég hélt bara áfram og hann lagaðist eftir nokkrar mínútur. Gerði þetta kannski 2-3 yfir þessa tvo daga. Svo er ég á leiðinni í bæinnn, stoppa rétt fyrir utan vík til að skoða mig um. Er svo að taka af stað aftur inná þjóðveginn, og þá kemur þetta flaut eða suð, frekar hátt eins og hann sé að blása framhjá, ég nefni þetta við félaga minn sem var með mér. Bara "vá, heyrirðu hvað hann er að blása framhjá". Hélt bara að þetta væri e-ð tengt þessum boost missi. En svo 2-3 sek seinna kemur þessi svaka hvellur og það snardrepst á bílnum. Og ég útí kant og tékka fyrst á tímareiminni, þar sem það dó á bílnum. Hún var í lagi þannig að ég fór að skoða mig um, einhver olía aftan við mótor þar sem túrbínan er, og mig grunar hana strax. Prufa að setja í gang, og bíllinn mökkreykir hvítu enda slatti af olíu sem er að spýtast útí pústið en gengur fínt annars. Færi hann svo inná næsta plan og í bæinn á kerru þetta kvöld.

Fer svo að rífa, og sé að compressorhúsið er bara clean búið að yfirgefa exhaust húsið. Compressor hjólið er í molum og róin hvergi sjáanleg. Það sem mér fannst skrítnast var að öxullinn virðist heill, gengjurnar á honum ósnertar og hann virðist við fyrstu skoðun vera beinn. Ég sprengdi allavega hosuna við túrbínuna, svo lekur hann olíu framanúr, sem er annaðhvort önnur hosa eða millikælirinn. Á eftir að rífa það í spað.

En mín spurning er, hvernig fór ég að þessu, hvað gerðist og er túrbínan ekki beyond repair? Er þetta boost tap ekki bara wastegate-ið að opnast og festast?

Og mælið þið með einhverjum sérstökum dealer úti? Þetta er Garrett GT2052V sýnist mér á plattanum á compressorhúsinu sem er búið að grafa eitthvað í, væntanlega týpu og partanúmer eða eitthvað.

Btw, bíllinn er í undirskrift og er að detta í 319þús km.

Albúm með myndum af þessu.
Image

_________________
Audi S4
Suzuki Vitara 35"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 10. Jul 2010 15:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Það sem gerist þegar þú missir boost svona er að túrbínan er að reyna að viðhalda því boosti sem þú hafðir áður.
Hún fer þá að reyna snúa sér hraðar og hraðar til að viðhalda loftflæðinu.

Ef þú lítur á þessa mynd hérna þá sést hvernig líkleg flæði lína fyrir M30B35 er.

Image+


Ef við myndum ýmindað okkur 4,5l M30 þá væri öll línan meira til hægri. Því það er meira flæði við sama boost.
Þetta er það sem er að gerast þegar verður boost missir, túrbínan er alltí einu að reyna fæða miklu stærri vél og fer því að blása heitar og spaðarnir snúast hraðar því það er alveg sama hversu mikið hún reynir að blása það myndast enginn mótþrýstingur og túrbínan heldur því bara áfram að snúast hraðar og hraðar.

Ég myndi segja að hún hafi farið hjá þér því að þú ofsnérir túrbínunni of lengi.

Ég get pantað svona túrbínu ef þú reddar mér partanúmerinu af henni.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 11. Jul 2010 01:22 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40
Posts: 716
Volvo :oops:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 11. Jul 2010 10:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
20"Tommi wrote:
Volvo :oops:



Eru awesome bílar

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 4 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 37 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group