Sjónvarpið mitt tók uppá því um daginn að hætta að virka, þetta er Sony Wega 32" túbusjónvarp og er þyngra en andskotinn.

BIlunin lýsir sér þannig að þegar ég kveiki á því reynir það að kveikja á sér en gefst svo upp og rauða powerljósið blikkar nokkrum sinnum.
Er búinn að fletta upp manualnum og þar stendur einfaldlega að ég þurfi að fara með sjónvarpið í viðgerð og ekkert nánar um það..
Hafið þið lent í einhverju svipuðu og hvað ætli sé best í stöðunni, er ekki að nenna að dröslast með þennan hlunk til þess að láta síðan segja mér að viðgerðin kosti handlegginn af...


