http://thorsaari.blog.is/blog/thorsaari ... 4412/?fb=1"
Tilmæli um "Tilmæli" Seðlabanka, Fjármálaeftirlits og ríkisstjórnar ÍslandsHugleysi ríkisstjórnarinnar (í þessu tilfelli með Steingrím J. í broddi fylkingar) og embættismanna kerfisins er orðið slíkt að þeir þora ekki lengur að tala íslensku og hafa nú gefið út fyrirmæli sem heita tilmæli. Það tók rúma viku af samkrulli og leynimakki ríkisstjórnarinnar, fjármálafyrirtækja og þeirra embættismanna sem settu Ísland á hausinn árið 2008 (já þeirra í Seðlabankanum, Fjármálaeftirlitinu og Viðskiptaráðuneytinu), að komast að niðurstöðu um hvernig mætti áfram láta almenning halda uppi fjármálafyrirtækjum landsins. Nú skal sjálfur Hæstiréttur hunsaður og dómur hans um ólögmætar gengistryggingar sniðgenginn með slíkum yfirgangi að réttarríkið hefur verið vanað.
Þótt menn þori ekki að nefna það þá er hér í raun um einhvers konar valdarán að ræða, þar sem framkvæmdavaldið undir forystu ríkisstjórnarinnar og með dyggum stuðningi embættismanna fyrrgreindra stofnana (sem nú eftir afglöp fyrri ára þurfa að koma sér í mjúkinn hjá stjórnvöldum), hefur afnumið niðurstöðu máls sem farið hefur lögbundna leið gegnum dómskerfið og alla leið í Hæstarétt. Þetta er niðurstaða mín eftir að hafa setið sameiginlegan fund efnahags- og skattanefndar og viðskiptanefndar í morgun þar sem fulltrúar alræðisins þeir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Arnór Sighvatsson aðstoðar-seðlabankastjóri, Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Ragnar Hafliðason aðstoðarforstjóri þess mættu á fundinn ásamt herskara lögfræðinga. Á fundinn komu einnig fulltrúi AGS Franek Roswadowski og fulltrúar Hagsmunasamtaka Heimilanna þau Friðrik Ó. Friðriksson, Andrea Ólafsdóttir og Marinó G. Njálsson og Talsmaður neytenda Tryggvi Gíslason. Áður hafði ég setið fundi með þessum mönnum um dómana sjálfa þann 21. júní, með fulltrúum fjármálafyrirtækja þann 23. júní og með sömu embættismönnum og einnig forsætis- og fjármálaráðherra þann 24. júní.
Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar þá tókst þessari hersveit embættismannakerfisins ekki að rökstyðja, hvorki lagalega né á efnahagslegum forsendum að hin s.k. "Tilmæli" þeirra um að fjármálafyrirtæki megi rukka ólögmæta vexti væru á einhvern hátt rökrétt, nema þá út frá því að "Tilmælin" væru einhvern vegin holl fyrir fjármálafyrirtækin. Ekki fengust þeir heldur til að nefna nöfn þeirra lögfræðinga sem þeir byggja álit sitt á og er hér með lýst eftir þeim. Í raun stóð ekki steinn yfir steini í málflutningi þeirra og var átakanlegt að sjá þessa annars ágætu menn, sem ég þekki suma af ágætis samstarfi, vera komna í þessa vonlausu stöðu en samt verja hið óverjanlega. Það stjórnkerfi er alvarlega sjúkt sem getur sett svona ferli af stað og þeir sem stjórna, í þessu tilfelli SJS og JS ásamt AGS geta ekki annað en verið annað tveggja, tiltölulega skeytingarlaus um almannahag að eðlisfari eða þá algerlega hornmáluð vegna eigin valdaþrár sem er svo nærð af ægivaldi samherjans AGS. (Sjá einnig grein Írisar Erlingsdóttur á Huffington Post "Is Iceland a Totalitarian State").
Það að tvær mikilvægustu stofnanir efnahagslífsins skuli gefa út "Tilmæli" sem eiga að skikka skuldugt fólk til að halda áfram að borga af lánum sem dæmd hafa verið ólögleg, til fyrirtækja sem munu að öllum líkindum fara á hausinn svo fólkið fær aldrei peningana til baka, er með slíkum ólíkindum að engu tali tekur. Hvernig voga þeir sér að gefa fjármálafyrirtækjum slíkt skotleyfi á almenning. Slík framkoma viðgengst erlendis en aðeins hjá mafíum og öðrum slíkum glæpaklíkum, og svo nú hjá íslenskum stjórnvöldum.
Það er greinilegt að fjármálakerfið er í raun á síðasta snúning og við blasir sennilega annað bankahrun, þar sem algert aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar við að reyna að finna skynsamlega lausn ræður ríkjum. Hér mun hægja á og óvissa og stopp ráða ríkjum næstu mánuði, alveg eins og frá október 2008 til 20. janúar 2009 þegar almenningur hóf mótmæli við Alþingishúsið og hætti ekki fyrr en ríkisstjórnin var farin frá sex dögum síðar. Íslenskt efnahagslíf og íslenskur almenningur þolir ekki annað slíkt tímabil.
Fjármálakerfið er of stórt, um nær 40% m.v. umsvifin í hagkerfinu, og of laskað til að bera sig lengur á sömu forsendum og virðist mér og fleirum, að yfirlýsingar ráðherra um ríkistryggðar innstæður í bönkum séu einnig í raun marklausar. Ríkissjóður (þ.e. fjármálaráðherra) á einfaldlega ekki lengur til þá fjármuni sem þarf til að tryggja innstæður í bönkum og getur ekki fengið þá lánaða neins staðar annars staðar heldur. Það er einboðið að fá það upp á yfirborðið frá sjálfum fjármálaráðherra hvernig hann ætlar sér að standa við það að tryggja allar innstæður með nánast gjaldþrota og rúinn trausti ríkissjóð.
Það er verið að eyðileggja íslenskt samfélag samkvæmt fyrirmælum frá AGS og með dyggum stuðningi ríkisstjórnarinnar og embættismannakerfisins. Þetta er ekkert nýtt og hefur gerst víða um heim þar sem AGS hefur komið inn og mætt vanhæfu og siðferðilega gjaldþrota embættismannakerfi og stjórnkerfi. Þó oft hafi ég sjálfur gagnrýnt íslenska stjórnsýslu sem og stjórnkerfið í heild hef ég ekki fyrr en nú gert mér almennilega grein fyrir algeru máttleysi þess. Máttleysi sem stafar af þeirri úrkynjun sem spillt fjórflokkakerfi til margra áratuga hefur leitt yfir þjóðina (sem á þó einnig sína sök því hún gat víst kosið annað). Þjóðarskútan er að sökkva og það eina sem embættismenn og ráðherrar bjóða upp á eru teskeiðar til að ausa með og heimta svo að hljómsveitin spili áfram.
Verið er að slátra velfeðrarkerfinu, heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og samgöngukerfinu vegna kröfu AGS um niðurskurð í ríkisfjármálum. Auðlindirnar verða svo seldar upp í skuldirnar eins og segir í samstarfsyfirlýsingu AGS og ríkisstjórnarinnar sem er undirskrifuð af Steingrími J. ". . . moving of energy resources in to tradeable sectors. . . " Allt tal VG um auðlindir í þjóðareigu er því marklaust, algerlega marklaust og stefna VG og Samfylkingar er að orku auðlindirnar skuli færðar í einkaeigu. Vatnið er svo næst, eða hvers vegna halda menn að það taki svona lnagan tíma að semja frumvarp um ný vatnalög í iðnaðarráðuneytinu. Það er einfaldlega vegna þess að verið er að takast á um eignarhaldið og að kröfu AGS verður vatnið einkvætt.
Í tilefni þess að "Tilmæli" eru orðin vinsæl og m.t.t. ofantalinna atriða sem og m.v. þær upplýsingar sem ég hef frá störfum mínum sem þingmaður og sem hagfræðingur þá mæli ég sjálfur til um eftirfarandi:
Tilmæli mín til skuldara allra gengistryggðra lána eru að borga ekki krónu meir af þeim en segir í upprunalegri greiðsluáætlun og að snúa sér til Hagsmunasamtaka heimilanna um nánari útfærslu á því. Ef um miklar ofgreiðslur er að ræða þá að hætta alveg að borga þar til ofgreiðslurnar hafa verið nákvæmlega reiknaðar út og endurgreiddar með vöxtum samkvæmt 18. gr. vaxtalaga eða höfuðstóll lækkaður á sömu forsendum.
Tilmæli mín til alls almennings eru að krefjast breytinga á ríkistjórninni þar sem skipstjóri og stýrimenn þjóðarskútunnar eru komin á aldur, þrotin kröftum og hugrekki og algerlega úrræðalaus.
Hvað varðar innstæður í bönkum þá eru komnar upp miklar efasemdir um getu ríkisins til að standa undir loforðum SJS um að þær séu tryggðar.
Tilmæli mín varðandi sparifé fólks eru því að menn hafi vara á sér og reyni að finna fjármálastofnun sem stendur utan við þá firringu sem enn er í gangi í mestum hluta fjármálakerfisins. Hér er ekki um auðugan garð að gresja en þó má benda á að Hreyfingin skiptir við Sparisjóð Strandamanna og einnig hefur Sparisjóður Þingeyinga staðið utan við vitleysuna.
Tilmæli mín til ríkisstjórnarinnar og Alþingismanna eru að leitað verði allra leiða til að ráða fram úr þessum vanda með hagsmuni almennings að leiðarljósi og skoðaðar verði t.d. þær hugmyndir sem ég setti fram í síðustu bloggfærslu minni þann 28. júní síðastliðinn.
Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er Hrunið enn ekki yfirstaðið. Stjórnmálin eru að molna í sundur, fjármálakerfið mun kikna, vegið er alvarlega að Hæstarétti og þar með réttarríkinu og síðast kemur væntanlega akademían þar sem skjóli fílabeinsturnsins verður svipt brott og allir gervi-fræðimennirnir og gervi-háskólarnir fá pokann sinn.
Tilmæli mín vegna alls þess sem framundan er, eru að menn haldi ró sinni og athygli og gefist aldrei upp á því að berjast fyrir réttlátri og sanngjarnri niðurstöðu mála. Það eru enn tvö erfið ár framundan þar sem endurreisn efnahagslífsins er ekki nema einn hluti af stóru endurreisninni. Til að sú endurreisn megi verða þarf samtakamátt og fjölda. Annars tekst hún ekki."
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...