Mér finnst svona verðumræða alltaf vera dálítið spes.
Hvaða máli skiptir það hvað núverandi eigandi keypti bílinn á?
Ég t.d. keypti einu sinni bíl með því að yfirtaka bifreiðagjaldaskuld upp á kr. 56.000,-, skipti um öxul (sem ég fékk á 10.000) og gat um leið selt hann strax á bilinu 150-200 þús án nánari breytinga en þessir bílar voru þá að fara í góðu standi á ca. 300 til 400 þús (fékk á endanum í heild 215 þús fyrir gripinn en það er nú önnur saga

).
Fyrri eigandi hafði ekki efni á því að borga skuldina og lét mig hafa bílinn svona. Ef hann hefði borgað skuldina, geta keypt öxulinn og skipt um hann sjálfur þá hefði hann sjálfsagt "grætt á þessu". Átti ég sem sagt bara að selja bílinn á 56 þús + 10 þús fyrir öxulinn (og kannski 10 þús fyrir vinnu) bara af því að ég fékk bílinn ódýrt?
Ég veit um nokkur dæmi þar sem dánarbú hafa selt ódýrt eða jafnvel gefið bíla þar sem það þurfti eitthvað smá að dytta að þeim til þess að gera þá aksturs- eða söluhæfa og því ekki vilja taka á sig mögulegan kostnað vegna þess.
Athuga ber að ef bíllinn er í "mint condition" þá er einfalt að selja hann út úr landi. Það væri mjög sorglegt ef svona gamall BMW færi úr landi því að því miður eru mjög fáir heilir eftir hérna á klakanum
Góðir fornbílar eru að seljast núna þar sem þeir eru oftast ágæt fjárfesting á meðan hlutabréf, skuldabréf og fasteignir eru að mestu leyti drasl (nema að maður sé einstaklega heppinn). Veit um nokkra mjög flotta fornbíla sem hafa verið að fara á mjög háu verði undanfarið ár.
Skoðið bara hvað svona bílar kosta erlendis og hvað það kostar að kaupa svona grip úti og flytja heim í dag.
Núverandi eigandi gæti alveg eins selt hann úr landi og jafnvel grætt á því ef þetta er "unique" eintak.
Hér má sjá nokkra 2002 til sölu á Mobile.de en n.b. bara einn þeirra er '69 módelið og "dálítið mikið öðruvísi" en þessi
http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/searc ... dCarSeals=