Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby Jónas » Thu 24. Jun 2010 10:13

Af 1,7 billjón kr útlánum bankanna var c.a. 50% gengistryggt (skv. VB).

Það verður allt logandi í málaferlum næstu ár útaf þessu, þar sem hvert einasta mál verður skoðað.

Sama hvernig þetta endar munu skattgreiðendur, þeir sem tóku ekki erlent lán og aðrir, þurfa að borga þetta að miklu leiti.

Íslenska ríkið á ennþá eignahlut í flestum bönkunum (?) og ef það þarf að sprauta auknu eigið fé inn þá mun það vera gert með okkar peningum. :thup:

Edit: VB segist hafa heimildir fyrir því að fjármálafyrirtæki undirbúi að reikna gengislán sem verðtryggð og rukka þau þannig, uns Hæstiréttur dæmir annað.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Krónan ...

Postby krullih » Thu 24. Jun 2010 10:22

Skv. öllu eru gengistryggð lán (amk. þessi samningur sem dæmt hefur verið í) að öllu leiti löglegur nema þetta ákvæði um gengistrygginguna.

Ergo: Samningar ættu að standa og þar á meðal vaxtaprósenta - en auðvitað mun verða fundin leið til að fara framhjá því, rétt eins og öllu öðru.
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Thu 24. Jun 2010 10:25

Jónas wrote:Sama hvernig þetta endar munu skattgreiðendur, þeir sem tóku ekki erlent lán og aðrir, þurfa að borga þetta að miklu leiti.

Íslenska ríkið á ennþá eignahlut í flestum bönkunum (?) og ef það þarf að sprauta auknu eigið fé inn þá mun það vera gert með okkar peningum. :thup:

Edit: VB segist hafa heimildir fyrir því að fjármálafyrirtæki undirbúi að reikna gengislán sem verðtryggð og rukka þau þannig, uns Hæstiréttur dæmir annað.

Rétt það verða málaferli í langan tíma en þetta mun ekki enda á skattgreiðendum á endanum. Það er þegar búið að afskrifa stóran hluta þessara lána.

Ríkið á bara 10% í íslandsbanka og álíka í Arion og ekki krónu í Lýsingu.

Þetta er ein ódýrasta leiðin til að leiðrétta skuldir heimila/fyrirtækja og koma þeim í viðráðanlegt horf. Næst er að horfa í verðtryggðu lánin.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Thu 24. Jun 2010 11:30

Jónas wrote:Sama hvernig þetta endar munu skattgreiðendur, þeir sem tóku ekki erlent lán og aðrir, þurfa að borga þetta að miklu leiti.

Algjör þvæla.

Það eru kröfuhafar sem munu fá skellinn og þar er ríkið í miklum minnihluta.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Svezel » Thu 24. Jun 2010 15:58

Einn punktur sem mig langar að koma með og þeir sem fara í fýlu verða þá bara að vera fúlir.

Nú tóku ansi margir lán sem var vissulega gengistryggt, þ.e. upphæðin var sögð tengd við gengi gjaldmiðla og það buðust hagstæðari kjör en hefðbundin verðtryggð lán. Þetta var af mörgum (ath ekki öllum) talin mjög sniðug lán og margir mæltu því með þeim.

Sumir vildu síðan ekki taka þessa gengisáhættu (það hlaut að fylgja kjörunum einhver áhætta, annars væru þau varla í boði) og tóku verðtryggð lán með hefðbundu íslensku greiðslufyrirkomulagi (x% vextir + verðtrygging, þ.e. upprunalega upphæð greidd skv. greiðsluvísitölu á tíma samnings).

Allir voru sáttir við sinn hlut meðan allt lék í lyndi, þeir sem tóku lán sem vor "gengistryggð" greiddu vissulega lægri vexti, greiddu strax inn á höfuðstól og lánin lækkuðu jafnvel töluvert á milli greiðslutímabila ef krónan styrktist gagnvart greiðslumiðlinum sem lánið var "bundið við" og þeir sem voru með verðtryggð lán borguðu sögulega lága vexti og greiðsluvísitalan ásamt verðbólgunni hélst í lágmarki.

Svo taka bankarnir upp á því að spila á móti krónunni af því að þeir máttu ekki gera upp í erlendri mynt og "urðu" að skila sem mestum hagnað í þeirri mynt sem þeir gerðu upp í. Jæja krónan heldur áfram að falla og upp kemst um skítlegt eðli í rekstri og lánveitingum sem veldur keðjuverkandi hruni á öllum fjármálastofnunum, krónan hrynur, verðbólgan trygglist og allt fer í fokk, þ.e. svarti svanurinn kemur.

Í textanum er mikil einföldun en vinsamlegast ekki vera að leita að atriðum til að snúa útur þegar niðurstaðan er óréttlæti í aðgerðum.
Nú verða þeir sem tóki "gengistryggð" lán alveg brjál því krónutalan sem ber að greiða hækkar gífurlega og langt upfram eðlega gengisahættu. Nú vill fólk meina að þar sem óheimilt er að eiga viðskipti í öðru en íslenskum krónum þá eru þessi lán ólögleg eða þar sem bankarnir sjálfir hafi komið þessu ástandi á þá sé séu þetta bara svik eða afþví að lánastofnunin tók sjálf þessi lán í krónum þá séu þetta svik o.s.frv.

Eru verðtryggð lán þá ekki að sama skapi ólögleg? Er staða greiðsluvísitölunnar ekki bein afleiðing af því að krónan féll eftir aðgerðir bankann? Lánin tvö eða þrífölduðust ekki EN þau hækkuðu gríðarlega og halda áfram að hækka.

Afhverju miðast allar aðgerðir og lögsóknir að því að gera lánsþegum gengislána byrgðina léttari þegar ekkert er gert fyrir hin fíflin sem vildu taka sem minnsta áhættu?

Eina sem ég sé í þessu er óréttlæti í aðgerðum, á ég að halda áfram að sligast undan mína verðtryggða húsnæðisláni meðan sá sem tók lán sem var bundið við erlenda mynt fær að halda sínum 2007 kjörum?
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Thu 24. Jun 2010 16:09

Svezel wrote:Einn punktur sem mig langar að koma með og þeir sem fara í fýlu verða þá bara að vera fúlir.

Eina sem ég sé í þessu er óréttlæti í aðgerðum, á ég að halda áfram að sligast undan mína verðtryggða húsnæðisláni meðan sá sem tók lán sem var bundið við erlenda mynt fær að halda sínum 2007 kjörum
?

Bingo,,,,,,,,,, þetta er einmitt það sem ég var að vitna í að hluta til
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby Jss » Thu 24. Jun 2010 16:25

Ég get varla annað en tekið undir með Svezel, það hefur í raun orðið forsendubrestur á báðum gerðum lána, verðtryggðum sem gengistryggðum.

Frekar súrt að þeir sem fóru jafnvel með offari í lántökur fái niðurfellingu að mestu. Flestir vissu nú að minnsta kosti að einhverju leyti af áhættunni við að taka gengistryggð lán þótt enginn hafi gert ráð fyrir viðlíka hruni okkar ástsælu krónu og raun bar vitni.

Sanngjarnast væri náttúrulega að færa báðar gerðir lána niður að minnsta kosti að hluta.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Re: Krónan ...

Postby Hemmi » Thu 24. Jun 2010 17:01

Þeir sem eru með verðtryggð lán eiga ekki að standa í þrasi og röfli við þá sem eru með gengistryggð lán.

Það er nokkuð ljóst að það þarf líka að leiðrétta verðtr. lánin vegna keðjuverkandi áhrifa frá gengistr. lánanna. Þetta hafa allir sem unnið hafa að gengistr. lánunum sagt, t.d. Björn Þorri.

Svo er umdeilt hvor lánapakkanna var áhættumeiri, ef borið var saman verðbólga frá 1980 og gengisflökt frá 1980 þá voru gengistr. lánin klárlega með vinninginn, fólk var bara ekki tilbúið að fara strax í snöruna sem hertist og hertist í rólegheitum allt lánatímabilið.

Bendi hér á góð viðtöl, fyrra við Björn Þorra og Kristinn H. (passið ykkur á skítafýlunni þegar hann byrjar að tala)
http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile ... emid=55734

Og seinna við talsmann Samtaka Lánþega, mjög umdeildar aðgerðir hjá honum í dag, en þó gott skot á Gylfa og Már.
http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile ... emid=56040
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Thu 24. Jun 2010 17:06

Svezel wrote:Einn punktur sem mig langar að koma með og þeir sem fara í fýlu verða þá bara að vera fúlir.

Nú tóku ansi margir lán sem var vissulega gengistryggt, þ.e. upphæðin var sögð tengd við gengi gjaldmiðla og það buðust hagstæðari kjör en hefðbundin verðtryggð lán. Þetta var af mörgum (ath ekki öllum) talin mjög sniðug lán og margir mæltu því með þeim.

Sumir vildu síðan ekki taka þessa gengisáhættu (það hlaut að fylgja kjörunum einhver áhætta, annars væru þau varla í boði) og tóku verðtryggð lán með hefðbundu íslensku greiðslufyrirkomulagi (x% vextir + verðtrygging, þ.e. upprunalega upphæð greidd skv. greiðsluvísitölu á tíma samnings).

Allir voru sáttir við sinn hlut meðan allt lék í lyndi, þeir sem tóku lán sem vor "gengistryggð" greiddu vissulega lægri vexti, greiddu strax inn á höfuðstól og lánin lækkuðu jafnvel töluvert á milli greiðslutímabila ef krónan styrktist gagnvart greiðslumiðlinum sem lánið var "bundið við" og þeir sem voru með verðtryggð lán borguðu sögulega lága vexti og greiðsluvísitalan ásamt verðbólgunni hélst í lágmarki.

Svo taka bankarnir upp á því að spila á móti krónunni af því að þeir máttu ekki gera upp í erlendri mynt og "urðu" að skila sem mestum hagnað í þeirri mynt sem þeir gerðu upp í. Jæja krónan heldur áfram að falla og upp kemst um skítlegt eðli í rekstri og lánveitingum sem veldur keðjuverkandi hruni á öllum fjármálastofnunum, krónan hrynur, verðbólgan trygglist og allt fer í fokk, þ.e. svarti svanurinn kemur.

Í textanum er mikil einföldun en vinsamlegast ekki vera að leita að atriðum til að snúa útur þegar niðurstaðan er óréttlæti í aðgerðum.
Nú verða þeir sem tóki "gengistryggð" lán alveg brjál því krónutalan sem ber að greiða hækkar gífurlega og langt upfram eðlega gengisahættu. Nú vill fólk meina að þar sem óheimilt er að eiga viðskipti í öðru en íslenskum krónum þá eru þessi lán ólögleg eða þar sem bankarnir sjálfir hafi komið þessu ástandi á þá sé séu þetta bara svik eða afþví að lánastofnunin tók sjálf þessi lán í krónum þá séu þetta svik o.s.frv.

Eru verðtryggð lán þá ekki að sama skapi ólögleg? Er staða greiðsluvísitölunnar ekki bein afleiðing af því að krónan féll eftir aðgerðir bankann? Lánin tvö eða þrífölduðust ekki EN þau hækkuðu gríðarlega og halda áfram að hækka.

Afhverju miðast allar aðgerðir og lögsóknir að því að gera lánsþegum gengislána byrgðina léttari þegar ekkert er gert fyrir hin fíflin sem vildu taka sem minnsta áhættu?

Eina sem ég sé í þessu er óréttlæti í aðgerðum, á ég að halda áfram að sligast undan mína verðtryggða húsnæðisláni meðan sá sem tók lán sem var bundið við erlenda mynt fær að halda sínum 2007 kjörum?

Næsta skref er einmitt að þeir sem tóku verðtryggðu lánin fái leiðréttingu sinna mála.

Það er í gangi smjörklípa af verstu sort þar sem reynt er að etja saman
lánþegum - þe. gengislána og verðtryggðra. Gamla góða deila og drottna
aðferðin.

Það sorglega er að margir eru einmitt búnir að bíta á það agn og hafa nú
mestar áhyggjur af innbyrðis mun þessara hópa frekar en að standa saman
og taka nú slaginn varðandi verðtryggðu lánin.

Frekar sorglegt.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby grettir » Thu 24. Jun 2010 17:24

Umræðan um gengistrygginguna er dálítið merkileg finnst mér.
Flestir virðast tengja myntkörfur við jeppa, sumarhús, fjórhjól og einhverja 10 milljón króna bíla þegar í langflestum tilfellum er um venjulega fjölskyldubíla að ræða. Við hjónin keyptum okkur Avensis fyrir nokkrum árum, borguðum 900 þúsund út og fengum "erlent" lán fyrir mismuninum.

Umræðan er farin að snúast um niðurfellingar, "ég hefði átt að kaupa mér tvo jeppa á myntkörfu" og stríð á milli þeirra sem eru með gengistryggð og vísitölutryggð lán.

Sannleikurinn er sá að ef einhver keypti sér 14 milljóna Land Krúser, þá sleppur hann ekkert við að borga 14 milljónir + vexti (ca 3 milljónir á 7 árum).
Jeppamaðurinn þarf samkvæmt dómnum ekki að borga 32 milljónir þegar upp verður staðið, en 17 milljónir ca. þarf hann samt að borga þegar upp er staðið. Þetta er engin lottóvinningur eins og fólk virðist líta á þetta. Aðeins spurning um sanngjarna samninga. Engin afskrift nema á uppdiktuðum "gengismun" í Excel sem ekkert er á bakvið nema rangar forsendur.

Það sem þarf að gera er að veita vísitölutryggðum lánum sömu meðferð á grundvelli sanngirni (krónan féll, lántaki bar ekki ábyrgð á því heldur lánveitendur) og þeir sem eru með þessi lán þurfa auðvitað að berjast fyrir því.
Ég er með slíkt lán á íbúðinni minni, hefur hækkað úr 15.6 milljónum í 22 á 4 árum. Það er því engan veginn áhættulaust að taka slíkt lán.

Ég leit allavega ekki á mín bílakaup sem einhver áhættu- afleiðuviðskipti. Ég var einfaldlega að kaupa mér hlut sem ég ætlaði að borga á nokkrum árum á lágum vöxtum. Ég hugsaði með mér að ef krónan félli um 20-30%, þá kæmi hvort sem er verðbólguskot sem gerði verðtryggða lánið ekki áhættuminna heldur þvert á móti.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Thu 24. Jun 2010 18:24

Nákvæmlega - það er reynt að matreiða þetta þannig að þarna sé um
að ræða óreiðufólk sem hafi verið að kaupa sér Range Rover, fellihýsi og
allan pakkann án þess að hafa nokkuð pælt í hvernig gengið á krónunni
hafi verið í gegnum tíðina.

Sannleikurinn er sá að til lengri tíma er geðveiki að taka verðtryggðu
lánin sökum þess hversu dýr þau eru. Þeir sem tóku þessi lán skoðuðu
að sjálfsögðu gengið aftur í tímann og mátu út frá því hverskonar
sveiflum mætti búast við:

Image

Skyggða svæðið var engan veginn í spilunum og ekki hafði fólk hugmyndaflug
til að láta sér detta það í hug að einmitt viðsemjandinn yrði einn aðal
gerandinn í því ferli.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Einarsss » Thu 24. Jun 2010 18:50

gengstryggð vs verðtryggð lán.. skiptir engu máli, það á leiðrétta báðar tegundirnar og fáránleg hvað sumir eru komnir í fight fíling á milli lánategunda
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Krónan ...

Postby grettir » Thu 24. Jun 2010 19:19

Einarsss wrote:gengstryggð vs verðtryggð lán.. skiptir engu máli, það á leiðrétta báðar tegundirnar og fáránleg hvað sumir eru komnir í fight fíling á milli lánategunda

Einmitt. Ég sé til dæmis ekki hversu mikið það kemur heildinni að gagni að þeir sem tóku gengistryggð lán fari á hausinn eða eyði öllu sparnaði sínum í Lýsingu, Avant eða SP.

Ætli það sé ekki skárra fyrir þjóðarfleyið að þessir peningar fari út í hagkerfið. Fólk fer kannski að dytta að húsunum sínum eða jafnvel gera við bíldruslurnar sem það hefur ekki haft efni á hingað til vegna afborgana.

Ég held að þessi fjármögnunarfyrirtæki séu ekkert að fara taka þátt í uppbyggingu eins eða neins hérna á næstu árum.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Hemmi » Thu 24. Jun 2010 21:05

Marinó enn og aftur með góða bloggfærslu: http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/1070683/

Fannst líka þetta komment gott.

Ég vil vekja sérstaka athygli á þessu myndbandi frá borgarafundi á vegum greiðsluverkfallsnefndar Hagsmunasamtaka heimilanna þann 18. september á síðasta ári.

Hlustið vel á Gylfa (frá og með tímapunkti 2:32.) Hann segir orðrétt, aðspurður um lögmæti gengistryggðra lána:

Í þessu tilviki er uppi réttarágreiningur. Úr honum skera dómstólar. Þegar úrskurður dómstóla liggur fyrir, þá fara menn að sjálfsögðu eftir honum. Það er bara einfaldlega þannig sem að réttarríkið virkar.

Það er átakanlegt, hvað maðurinn er mikill svikari orða sinna.
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Thu 24. Jun 2010 21:22

Við nafni skorum á gengis pakkið í sjómann :lol: :lol:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests