Nýtt púst. 2x2" rör frá flækjum í tvo hvarfa og tvær langar túbur sem sameinast svo í eitt 2,5" rör sem fer í opinn kút sem fer svo í opinn endakút með dtm stútum. Frekar lágvært en samt þungt hljóð...Lét gera þetta hjá pústþjónustunni Ás, vel gert hjá þeim og ég er alveg sáttur við sándið. Ekki 100% það sem ég vonaðist eftir en ég nenni ekki að pæla í þessu pústógeði meira. Fínt að hafa þetta lágvært.
Og ég var að leika mér með felgur. Breyton Vison reps, 18x8,5 á ónýtum dekkjum og mjög skítugar. Man ekki offsetið en þær voru alveg frekar flush á bílnum. Og þær eru örugglega til sölu...
Svo er fullt af drasli á leiðinni frá Schmiedmann og Bretlandi


