Hver tekur HM

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hver tekur HM ?

Frakkland
1
1%
Argentína
20
15%
England
7
5%
Þýskaland
28
21%
Holland
13
10%
Ítalía
4
3%
Brasilía
9
7%
Spánn
39
29%
Norður Kórea
9
7%
Einhver annar
5
4%
 
Total votes : 135

Re: Hver tekur HM

Postby Hannsi » Tue 01. Jun 2010 09:45

Wtf er HM í fótbolta í ár? :o
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Re: Hver tekur HM

Postby arnibjorn » Tue 01. Jun 2010 09:51

Hannsi wrote:Wtf er HM í fótbolta í ár? :o

Já og fyrst að þú vissir það ekki.... stay out!

Nei ég segi svona :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Hver tekur HM

Postby Hannsi » Tue 01. Jun 2010 09:55

Sýnir hvað ég horfi mikið á sjónvarp, les blöð eða hlusta á útvarp :P
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Re: Hver tekur HM

Postby Andri Fannar » Tue 01. Jun 2010 10:05

England eru allavega ekki að fara að vinna þetta.

Spánn verða líklega sprækir, verður gaman að fylgjast með Argentínu, eru klárlega með frábæran hóp eins og Brasilía en spurning hvernig þeir ná að púsla saman liði.
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Hver tekur HM

Postby arnibjorn » Tue 01. Jun 2010 10:09

Andri Fannar wrote:England eru allavega ekki að fara að vinna þetta.

Spánn verða líklega sprækir, verður gaman að fylgjast með Argentínu, eru klárlega með frábæran hóp eins og Brasilía en spurning hvernig þeir ná að púsla saman liði.

Argentínu gekk samt ekkert voðalega vel í undankeppninni, verður athyglisvert að sjá hvernig þeim gengur í aðal keppninni.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Hver tekur HM

Postby gunnar » Tue 01. Jun 2010 11:16

Ég tippa á Brazil.

Argentína eiga að mínu mati ekki séns með Madonnu sem þjálfara.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Hver tekur HM

Postby basten » Tue 01. Jun 2010 17:52

Held það hafi sjaldan verið jafn erfitt að spá fyrir um sigurvegara HM eins og í ár. Ég hef þrisvar sinnum giskað á réttan sigurvegara fyrir HM síðan 1986, Brasilía 1994 og 2002 og Ítalía 2006 8)

Í ár eru mörg lið sem eiga mjög svipaðan séns. Bestu liðin eru klárlega Brasilía, Argentína, Spánn, Holland, England, Þýskaland, Ítalía og Frakkland. Ég held að Danir eigi eftir að detta út í riðlinum sínum. Afríkuþjóðirnar eru svo alltaf wildcard en ég held að þær hafi ekki skipulagið til að vinna HM. Ein eða tvær Afríkuþjóðir eiga hugsanlega eftir að komast í 8-liða úrslit en ekki lengra.

Brasilía eru alltaf sterkir og geta nánast alltaf unnið HM. Það er samt e-ð sem segir manni að þeir vinni ekki í ár og ég hugsa að þeir verði slegnir út í 8-liða úrslitum eða undanúrslitum. Ef þeir ná í úrslitaleikinn þá vinna þeir.

Ég held að Argentína vinni ekki þrátt fyrir sterkan hóp og byggi ég það aðallega á þjálfaranum þeirra. Hef ekki trú á að Maradona sé sá taktíker sem þarf til að vinna HM. Ef einhver annar en Maradona væri þjálfari þá myndi ég spá þeim pottþétt í undanúrslit og jafnvel úrslitaleikinn.

Spánverjar eru gríðarlega sterkir og margir búast við þeim sterkum, sérstaklega eftir að þeir unnu sitt fyrsta stórmót á EM 2008. Spánn ætti samkvæmt öllu að fara inn í undanúrslit en ég held þeir vinni ekki.


Hollendingar eru með gríðarlega gott lið og með Sneijder og Robben funheita framarlega á miðjunni. Býst við að þeir detti út í 8-liða úrslitum en þeir gætu þó komist í undanúrslit.

England er liðið sem allir tala alltaf um fyrir HM. Í ár eru þeir sennilega með eitt af sínum sterkustu landsliðum í mörg ár og aldrei þessu vant eru þeir með sannan sigurvegara við stjórnvölinn, Fabio Capello. Ég held að hann sé akkúrat það sem Englendingum hefur vantað á stórmótum. England er ekki með sterkasta liðið á HM en ég ætla samt að spá því að þeir verði Heimsmeistarar og sú spá er að mestu byggð á því að Capello stjórnar þeim og setur upp leikina hvernig þeir eiga að spilast.

Þýska stálið (gamla klysjan) er ólíkindatól og alltaf til alls líklegt. Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim síðan á HM 2006 eftir að Klinsmann breytti leikstíl þeirra í skemmtilegan sóknarbolta og Joachim Löw heldur sömu línu. Held samt að þá muni of mikið um Michael Ballack, sem er meiddur. Spái þeim i 8-liða úrslit og jafnvel undanúrslit ef allt gengur upp.

Heimsmeistarar Ítalíu eru líka ólíkindatól og geta unnið alla, en líka tapað fyrir öllum. Hef ekki trú á að þeir vinni HM tvisvar í röð. Sama spá og með Þýskaland.

Frakkland hafa verið slakir sóknarlega og ekki náð að skora nóg, það skiptir þó ekki öllu í HM en ég held að þeim verði refsað fyrir það í útsláttarkeppninni á móti sterkum sóknarliðum.

Það er alltaf gaman að spá í HM og sennilega mjög margir ósammála minni spá. Það eru góðar líkur á að ég hafi rangt fyrir mér, en það er gaman að spá í hlutina og rökræða þá.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Re: Hver tekur HM

Postby Misdo » Tue 01. Jun 2010 19:05

Held bara með mínum mönnum og segji portugal
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Re: Hver tekur HM

Postby gulli » Tue 01. Jun 2010 20:48

Ég segji að Spánn Taki þetta... er svona 90% viss um það. Spánn og Argentína verða í Final :thup: :thup:
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Hver tekur HM

Postby Thrullerinn » Wed 02. Jun 2010 14:41

Þessi tekur þetta

Image
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Hver tekur HM

Postby fart » Wed 02. Jun 2010 14:51

Flestir til í að taka þessa 8)

Mögulegur úrslitaleikur??

Image

... Varla :lol:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hver tekur HM

Postby Vlad » Wed 02. Jun 2010 19:00

Ég vona að Þjóðverjar vinni þetta mót. Ótrúlegur sigurvilji í þessu liði þegar þýska stálið dettur í gang, hinsvegar vantar einhvern leiðtoga í liðið. Síðan hef ég engan áhuga á því að Spánverjar vinni þetta mót með whining cunt Torres frammi, svo var fólk að tala um að Ronaldo væri aumingi hoho.

Spútniklið keppninnar held ég að verði Sviss eða Grikkir þar sem þessi lið spila bæði leiðinlegan varnarbolta sem gæti komið þeim lang.

Djöfull hlakkar mig til samt. :)
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Hver tekur HM

Postby Zed III » Thu 03. Jun 2010 08:33

basten wrote:England er liðið sem allir tala alltaf um fyrir HM. Í ár eru þeir sennilega með eitt af sínum sterkustu landsliðum í mörg ár og aldrei þessu vant eru þeir með sannan sigurvegara við stjórnvölinn, Fabio Capello. Ég held að hann sé akkúrat það sem Englendingum hefur vantað á stórmótum. England er ekki með sterkasta liðið á HM en ég ætla samt að spá því að þeir verði Heimsmeistarar og sú spá er að mestu byggð á því að Capello stjórnar þeim og setur upp leikina hvernig þeir eiga að spilast.


Flott samantekt hjá þér.

Heldur þú að Tjallin sé með nógu góða markvörslu, vörn, sókn og kanta ?

Capello á eftir að hjálpa þeim mikið en ég held að liðið sé ekki nógu sterkt.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Hver tekur HM

Postby arnibjorn » Thu 03. Jun 2010 09:42

Zed III wrote:
basten wrote:England er liðið sem allir tala alltaf um fyrir HM. Í ár eru þeir sennilega með eitt af sínum sterkustu landsliðum í mörg ár og aldrei þessu vant eru þeir með sannan sigurvegara við stjórnvölinn, Fabio Capello. Ég held að hann sé akkúrat það sem Englendingum hefur vantað á stórmótum. England er ekki með sterkasta liðið á HM en ég ætla samt að spá því að þeir verði Heimsmeistarar og sú spá er að mestu byggð á því að Capello stjórnar þeim og setur upp leikina hvernig þeir eiga að spilast.


Flott samantekt hjá þér.

Heldur þú að Tjallin sé með nógu góða markvörslu, vörn, sókn og kanta ?

Capello á eftir að hjálpa þeim mikið en ég held að liðið sé ekki nógu sterkt.

Markvörður: David James
Vörn: A.Cole, Rio, Terry, Glen Johnson
Miðja:Joe Cole, Barry, Lampard, Wright-Phillips
Milli miðju og sóknar: Gerrard
Sókn: Rooney

Veit ekki með markverðina hjá þeim en ég held að þetta gæti verið solid uppstilling.
Mest allt leikmenn í heimsklassa liðum(Nema kannski Glen Johnson og Gerrard :alien: )
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Hver tekur HM

Postby gunnar » Thu 03. Jun 2010 09:46

England verður ekki heimsmeistari, það er bara svoleiðis.

Álagið og pressan sem fjölmiðlar og aðrir úti setja á landsliðið er ómanneskjulegt. Það eru ALLTAF þvílíkar væntingar og svo standa þeir ekki undir því.

Reyndar má segjast að ef England á einhvern tíma möguleika þá er það nú með Capello með svipuna á þessum prímadonnum.

Grunar samt að Brasilía/Þýskaland/Spánn vinni þetta.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests