Daginn
Ég er með eitt stykki 94 árgerð af BMW 525ix með ónýtu útvarpi. Ég hafði hugsað mér að skipta um það bara sjálfur og er þá með nokkrar spurningar varðandi það sem vonandi einhver getur svarað:
Varðandi stærðina á útvarpinu, þá sýnist mér þetta vera bara hefðbundin stærð. Er það eitthvað sem ég þarf að passa mig á þegar ég kaupi útvarp í hann? Eitthvað varðandi festingar eða þess háttar?
Einnig er ég að spá hvort tengingarnar verði eitthvað til vandræða. Það er eitthvað þjófavarnarkerfi í bílnum sem virkar þannig að útvarpið læsir sér ef hann verður rafmagnslaus. Er þetta eitthvað sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af?
Svo að lokum, varðandi það að fjarlægja tækið. Ég hef ekki mikið reynt að losa það, en tókst það ekki í fljótu bragði. Eru einhver trix sem þarf að beita til þess að losa svona tæki úr? Btw, þetta er orginal BMW útvarp.
p.s. ef einhver á útvarp sem passar í þennann bíl þá gæti ég haft áhuga á að kaupa, þarf ekkert endilega að vera með CD en væri samt betra.
Kveðja
Frímann
