JonFreyr wrote:
Er ekki góður millivegur að vera með frekar hörð dekk með réttum þrýstingi og hita þau sæmilega fyrir rönn, finnst það lógískt upp á rúllu-mótstöðu að gera. Startið er auðvitað mikilvægt en svona tímalega séð þá finnst mér mikilvægara að hafa sem minnsta mótstöðu restina af brautinni upp á hröðunina að gera. Start má líka fiffa alveg endalaust, geri það sjaldan að drop-clutcha þegar ég tek af stað en næ samt alveg að henda bílnum af stað.
En hvenær er ETA á almennilega myndir af bílnum samansettum og klárum á fínu felgunum

Er byrjaður að raða bílnum aðeins saman með hjálp Robba318is... ætlum að hjálpa hvor öðrum með þetta þar sem við erum á svipuðu leveli með bílana okkar núna.. báðir nýsprautaðir og ekkert utan á þeim

1. fara með rúðurnar í filmun, allar hliðarrúður og afturrúðan, gerist líklega eftir vinnu á eftir
2. fá lausu partana úr sprautun frá Árna, vonandi í þessari viku en hann er að fara gifta sig um helgina þannig að ég fyrirgef honum alveg ef það tefst eitthvað
3. Er að bíða eftir að fá dekk sem ég var búinn að semja um að kaupa fyrir framfelgurnar
4. Þarf að blinga framfelgurnar.. tekur ca 2 daga
5. mála aftur bremsudælurnar að framan( skemmdist aðeins lakkið á þeim þegar það var verið að setja þær á) og líma nýja brembo límmiða.
6. henda restina af pörtunum á bílinn ásamt að setja rúðurnar í
7. fá sendingu að utan í hendurnar sem inniheldur einhverja lista og plast utan á bílinn
8. pressa nýja spindla í spyrnurnar að framan
Þetta er það sem á eftir að græja og ekkert endilega í þessari röð
Vonandi bara klár í byrjun júní
