Zed III wrote:Hemmi wrote:Um leið og þeir taka bílinn þá eru það tapaðir peningar, þ.e.a.s. ef hæstiréttur dæmir lánin ólögleg.
Og þeir peningar sem fólk átti þá ofborgað á lánunum verða eftir í Gamla Lýsing HF, nýja leiðrétta lánið færist sennilega á Nýja Lýsing eða annað.
Ekki rétt.
Það kemur til skuldajöfnun milli gamla og nýja félagsins, þú átt kröfu á gamla félagið og nýja félagið á kröfu á þig sem nettast.
Eina leiðin til að tapa fé er að fyrirtækið hirði bílinn og selji hann (eða flytji úr landi) þegar staðan er sú að þú átt eitthvað í bílnum eftir að dómur fellur og hendir út gengistryggingunni. Þá munt þú eiga kröfu á gjaldþrota félagið sem þú þarft að sækja.
Dæmi
tekið lán 2,5m
bíll kostar 3,5m
Lán í dag 5m
bíll í dag 3m
Fyrirtæki tekur bílinn og selur hann á 3m. Fyrirtæki segir þig skulda 2m.
Dómur fellur og þú skuldaðir bara 2,5m, ekki 5. Þú þarft núna að sækja 0,5m á fyrirtækið sem er farið á hausinn, ekki gott fyrir þig.
OK
Þannig að það þarf þá ekki að hætta að borga núna til að ná upp inneign?
ég gæti þá hætt að borga eftir að dómur félli?
Ég er samt ekki alveg tilbúinn að treysta á það
Eða er ég að misskilja þig





