nei, ég hef ekki græjur í það... skipta um fóðringar í alternatornum, laga pústið og eitthvað smotterí í viðbót sem er rafmagnstengt og ég treysti mér ekki í það.
Ég ætla sjálfur að laga sílsana og skipta um kúplinguna, svo stendur líka til að setja "strutbrace" í skottið (veit samt ekki hvaða áhrif það hefur á hátalarana, þeir eru mjög nálægt).
Þetta er svona það sem er á döfinni núna.
Svo er næsta mál á dagskrá að finna 15" Alpina felgur á góðu verði, ég missti af einum í gær (á ekki pening núna) og áður en þær fara undir þyrfti ég að setja stífari dempara í að framan, kannski einhverja stillanlega - eigið þið ekki til dempara í þetta að framan og kannski prís fyrir mig líka?
Að þessu loknu væri hlé á framkvæmdum þar til sumarið 2005 en þá myndi ég fara vonandi í að "Alpina" hann
Svo sæa ég nú eitt á ebay.de í gær - gírkassa úr Alpina C1 E21 (byggður á 323i) og verðið var fínt - hef reyndar ekki hugmynd um hvort hann passar en það freystaði allavega samt. Það er svo margt sem að maður getur keypt þegar fjárráðin hressast!
Maður yrði ekki lengi að gera þennan bíl þannig að maður myndi aldrei tíma að selja hann.