JOGA wrote:Rosalega flottur![]()
En mætti ég spyrja af hverju þú keyptir nýjar OEM felgur á þessu verði?
Þ.e. í stað þess að taka notaðar í gegn eða flottar OEM+ frá BBS t.d.
Sjálfsagt og mjög svo eðlileg spurning.
Hinum var stolið úr geymslu frá mér í haust og því vantaði mig felgur og dekk. Tryggingarnar voru svo elskulegar að borga mestanpartinn af þessu og einungis þess vegna tók ég OEM. Var að spá í BBS CH (LM mega flott en hrikalega dýrt) sem eru þónokkuð ódýrari en fyrst svona var tók ég bara OEM. Ekki margir held ég sem eiga nýjar OEM M5 felgur orðið held ég. Heyrði einhversstaðar að það væri orðið erfitt að fá þetta, en þessar voru til hér í SE, utan eina reyndar sem kom frá DE.
Ef ég hefði hinsvegar sjálfur þurft að borga þetta, hefði ég klárlega tekið BBS CH, enda helmingi ódýrari
G









