Eitt sem ég skil samt ekki, núna eru tveir í röð búnir að fá aldeilis að fynna fyrir verðlöggunum hér nýlega sem er kanski ekki það heppilegasta þegar menn ætla að reyna að selja dýrt.
En afhverju þessi viðbrögð, Það er einfaldlega verið að benda á að verðið sé óraunverulegt og ætti seljandi þá að geta aðlagað sig markaðnum og selt fyrir rest en ekki rifist og skammast yfir að einhver átti sig á háa verðinu og bendi á það.
Eins og staðan er í dag getur verið erfitt að verðmeta bíla og aðra hluti og verða menn bara að sætta sig við þessa "hjálp" sem þeir fá.
Sjálfur var ég nýlega í svipaðri stöðu með tölvu sem ég er að reyna að selja, mér var bent á að uppsett verð væri of hátt og lækkaði ég hana, en ekki nóg fyrir suma og komu þá smá rökræður um það en vonandi gerðist ég ekki eins barnalegur og þeir tveir sem hættu við að selja kraftsmeðlimum.
Ég vil meina að það séu ekki verðlöggurnar sem eru "l2c" heldur eru það menn sem þola ekki að rétt verð komi framm og hrökkva í dónalega vörn.
Eins svona til viðbótar þá skil ég ekki orðin "allt skítkast bannað". Þegar ég les þetta í söluþræði þá hugsa ég strax að seljandi hafi eitthvað að fela eða vilji ekki svara "óþæginlegum" spurningum. Rosalega fráhrindandi!



