Ég mundi telja t.d mössunina á þessum Avensis (held ég) vera mössun fyrir bílasýningu, s.s massað allt í burtu sem mögulega er hægt að massa, en þá bitnar það aftur á móti allt of mikið á styrk lakksins.
Ég hef farið á námskeið í þessu, og þar var þetta einmitt sýnt mjög vel, og voru notuð húdd af samskonar bílum á svipuðum aldri, annað var massað svo mikið að það sást ekkert nema djúp steinköst, en hitt var massað aðeins minna, þannig að það voru ennþá nokkrar örrispur sem hefði verið hægt að massa úr, en þær sáust samt ekki nema skoða það vel, fyrra húddið rispaðist við það að nudda ca. þrisvar yfir sama svæðið með puttanum þrátt fyrir að vera tandurhreint, en seinna húddið þoldi þetta alveg án þess að fá vott af rispum á sig.
Og ef þú vilt skoða eitthvað af því sem ég hef gert, þá er einn Focus st inní efri salnum hjá þeim í Brimborg, og einnig einn hárrauður, þeir eru gott dæmi sem vel er hægt að sjá hversu vel þeir eru unnir

