Tekið af Facebook bróður míns, datt í hug að auglýsa þetta hér ef það vantaði einhverjum smið vinnu.
"Jón Gunnar Benjamínsson auglýsir eftir vönum smið/smiðum til að vinna að breytingum á skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal! Um er að ræða smíði rampa, breikkun á hurðum og fleira sem miðar að því að gera skálana og hreinlætisaðstöðuna aðgengilega fólki í hjólastólum. Vinnan fer fram í byrjun júní nk. Ég á myndir af skálanum sem ég get sent viðkomandi svo betur sé hægt að átta sig á aðstæðum."
