Bíllinn titrar þegar ég stíg á bremsuna.
Var nokkuð viss um að þetta væru diskarnir til að byrja með en nú er ég í vafa.
Er nokkuð viss um að þetta komi svolítið og fari. Fer reyndar aldrei en verður stundum töluvert áberandi og þá óháð hraða.
Fóðringarnar að framan eru allar mjög fínar nema "stabilizer links" sem eru orðnir svolítið slitnir. Aðrar virka mjög nýlegar.
Hvað dettur fólki í hug? Diskar og klossar eru mjög lítið slitnir og ég vill reyna að sleppa við að skipta þeim út ef þetta er eitthvað annað.






