Alf litla langaði í haglabyssu meira en nokkuð annað í afmælisgjöf, svo pabbi hans lofar að hann fengi eina slíka ef hann yrði duglegur í skólanum og gengi vel í lokaprófunum. Um vorið kemur síðan Alf litli til pabba síns með einkunnarspjaldið sem á voru tómar 10, svo Kálbjörn kaupir forláta haglabyssu handa stráknum sínum,eins og hann var búinn að lofa. Himinlifandi yfir gjöfinni, fer Alf litli að sýna strákunum í hverfninu nýju byssuna sína, þangað til hann kemur til Vegars son dr Hermansens..,,Hey Vegar ''segir Alf litli, ,,sjáðu flottu haglabyssuna mína!'' ,,Já hún er nokkuð flott,'' segir Vegar. ,,En ég á nýtt gullúr sem er miklu meira virði en haglabyssa.... en af því að þú ert vinur minn svo ég skal gera þér tilboð. Gullúrið mitt fyrir haglabyssuna þína.'' Alf litli hugsar málið vandlega og slær svo til. Hann fer síðan heim og sýnir pabba sínum nýja gullúrið. Kálbjörn hristir hausinn og segir: ææææ elsku Alf minn, sjáðu nú til sko,,,dag nokkurn áttu eftir að verða fullorðinn og finna þér konu og giftast henni, og þú átt eftir að koma of snemma heim úr vinnunni einn daginn og þú átt eftir að koma að konunni þinni í rúminu með öðrum gaur, og hvað ? ætlarðu að standa yfir honum með úrið og segja þá,: 'Hey,Hey,, tíminn er búinn!'?''
_________________ Enginn bíll!
|