Smá breytt plön fyrir sumarið
Búinn að vera draumur lengi lengi hjá mér að heilmála bílinn hjá mér í OEM litnum sem er Brilliant Rot og er ég búinn að ráða Árna Sezar til verksins

Þetta verður alveg einum of svalt þó ég segi sjálfur frá, lakkið á bílnum er ekkert til að hrópa húrra fyrir núna, vel kústað og glæran farin að flagna á nokkrum stöðum. Hurðunum verður skipt út fyrir óbeyglaðar ásamt öðru frambrettinu.. á þetta til í geymslunni.
Get ekki beðið eftir að sjá bílinn 100% kláraðann að utan

Svo verð ég greinilega að hunskast til að pólera kantinn á felgunum hjá mér.. var ekki að nenna því en fínt að fá smá spark í rass til að klára það dæmi fyrir sumarið

Þetta þýðir samt sennilega endalok drift ferils bílsins.. mun ekki þora að eiga hættu á að eitthvað fari úrskeiðis. Verð bara meðlimur í Team Jónki-Alpina í staðinn
Fæ mér einhvern tramp drifter seinna í spólið uppá braut .. efast um að maður geti haldið sig lengi frá því.. enda skemmtilegasta mótorsportið
