Vantar pro hjálp - E30

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vantar pro hjálp - E30

Postby O.Johnson » Sat 21. Feb 2004 23:16

Er það eðlilegt að það sé komið sót upp í soggrein ?
Image



Þetta er fremri kælirinn og viftan. Hvað er hann að kæla og til hvers eru tvær viftur ? Er þetta ekki eitthvað A/C dót sem er ekki nauðsinlegt fyrst að ég ætla ekki að hafa A/C í bílnum ?
Image



Hérna er vatnsdælan. Er ok að hún sé svona ryðguð ?, þ.e.a.s. dæluhjólið.
Image



Hér er vatnsláshúsið. Hvaða hvíta sull er þetta á endunum ? Er þetta ekki eitthvað úr kælivatninu ?
Image
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby Jökull » Sun 22. Feb 2004 01:17

Er þetta ekki bara smá tæring á húsinu, og ég held að þetta sé bara drulla,olíulitur og reyndar líka sót sem fer framhjá stimplunum í sogreininni því að sveifarhúsöndunin liggur þangað.
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Postby joiS » Sun 22. Feb 2004 01:22

ég er ekki pro en ég hef nokkrar hugmyndir um hvað gæti verið að,
þessi auka vifta að framan er fyrir a/c þegar a/c er í gangi erfiðar vélin töluvert meira og þess vegna er þessi auka vifta, mér dettur í hug að bíllinn þin sé frá suður evropu spán/italia, þetta rið í dæluni hef ég séð oft
en þá oftast bíllinn hefur staðið lengi óhreyfður úti! Þetta gæti skemmt leguna í henni svo ég mæli með nýrri! Legan á eflaust ekki langt eftir.

olían uppí soggrein það hefur eflaust verið komið slit í olíu eða stimpilhringi hjá þér og þegar bílinn sýgur loft, sýgur hann á mótu upp olíu
sem fer einnig út um útblástur, einnig er mögulegt að ventlagúmin séu íllafarin.

ég er bara að segja þér mína hugmynd af þessu hún þarf ekki að vera sú rétta!

kv og von um að hann gangi hjá þér soon
jois
e46 320td 02
e21 335I
User avatar
joiS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 946
Joined: Wed 11. Sep 2002 10:39
Location: milf hunting

Postby Stefan325i » Sun 22. Feb 2004 01:53

þetta er allt eðlilegt

viftan er AC vifta og þú þarft hana ekki ef þú sleppir ACinu

ég man samt ekki eftir svona sóti í minni soggrein það var bara olía í minni soggrein það er eðlilegt.

í sambandi við vatnsdæluna þá er þetta bara tæring þetta er ál hús og myndast bara með tímanum.

Hvernig gengr annars með greiið er eitthvað að gerast ????????
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby O.Johnson » Sun 22. Feb 2004 02:08

Stefan325i wrote:Hvernig gengr annars með greiið er eitthvað að gerast ????????


Það er alltaf eitthvað að gerast, bara lítið í einu :) Ég er að gera eitthvað á hverjum degi. Núna er ég t.d. að skipta um pakningar og pakdós í stýrisdælunni, hún var byrjuð að leka greyið. Er sem sagt bara að gera það ódýrasta fyrst.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests