by bebecar » Fri 20. Feb 2004 08:47
Það voru nú til margar sögur af BMW M5 bílum af E34 gerðinni, ein þeirra var á þann veg að arabi nokkur hafi látið útbúa hann með vélbyssum í skottinu með sjálvirkri miðun, þessi bíll átti líka að vera 470 hestöfl með 3.8 lítra vélinni og með innbyggða lofttjakka í sílsunum, loftþrýstikerfi fyrir dekkin og einhverja létta brynvörn.
Svo veit náttúrulega engin hvort eitthvað er til í þessu en eitt er víst, það er nóg til af ríkum aröbum með smekk fyrir dýrum bílum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road