by fart » Sun 28. Feb 2010 13:47
Þetta mál er bara miklu flóknara en það að borga eða ekki borga.
1. þá voru samþykktar reglur á íslandi um það hvernig ætti að tryggja innistæður, í þeim er ekkert talað um ríkisábyrgð ef sjóðurinn tæmist, auk þess er skilgreint að einungis er greitt út í ISK sama í hvaða mynt innistæðan var.
2. þá voru þessar reglur samþykktar í ESB og lagðar til grundvallar þegar Landsbanki fékk heimild til að opna útibú og hefja söfnun.
3. Bretar og Hollendingar ákváðu að greiða innistæðurnar út einhliða, venjulega er það innistæðusjóðurinn sem á að ákveða hvenær sé greitt út (t.d. hérna í Lúx) og ekkert ríki ræður þar um enda sjóðurinn sjálfstæður.
4. Bretar og Hollendingar ætla að rukka okkur um vexti af einhverju sem við báðum ekki um að yrði greitt.
5. Enginn hefur getað sýnt fram á það með óvíkjandi hætti að Ísland eigi að borga eitt eða neitt.
Í gunninn er þetta mál svona.
Innistæður eru tryggðar með innistæðutryggingarsjóð andvirði € 20.800 (evru tengt) en í ÍSK. Innistæðutryggingasjóðurinn er fjármagnaður með framlagi frá bönkunum sem er hlutfall af þeim innistæðum sem eru lagðar inn í bankann. Fræðilega er kerfið því dauðadæmt frá fyrsta degi ef um hrun verður, og kerfið er einungis hannað til að bæta innistæður ef t.d. ein stofnun fer á hausinn.
Svo hefjast ofursafnanir innistæðna, og hlutfall af þeim er lagt til hliðar, en að sjálfsögðu ekki allar innistæðurnar því að þá væri pointless að safna þeim.
Líklegt má telja að ef einn breskur banki færi á hausinn væri nægt fé til að greiða út innistæður þess banka í öllum útibúum enda fullt af öðrum bönkum sem greiða inní innistæðutryggingarkerfið. Þess vegna er ekki hægt að líkja saman aðstæðum Íslands og Bretlands, nema ef maður myndi gera ráð fyrir að allir bankar í Bretlandi færu á hausinn í einu, og þá væri líklega breska ríkið á hausnum ef þeir ættu að bæta allar innistæður banka erlendis.
Það sem er líka súrt í þessu er að Bretar ákváðu að greiða út GBP 50.000 (eins og tryggingin var í UK) en ekki € 20.800 andvirði eins og skv íslenska sjóðnum. Hollendingar greiddu út allt að € 100.000 en ekki € 20.800.
Bottom line. Bresk og Hollensk stjórnvöld ákváðu að skrifa tékka sem þeir vilja að við borgum. Ef ég Alpina fer út í búð og þar segir kassakonan, heyrðu hann Svenni í Lúx var hérna áðan og borgaði ekki fyrir samlokuna nennir þú að borga.. Alpina borgar því að hann vill ganga í augun á kassastelpunni. Hann hringir svo í mig og segir, heyrðu þú skuldar mér eina rækjuloku... en vandamálið er það að ég var í þessari búið, en keypti enga rækjuloku. Skulda ég þá Alpina andvirði einnar rækjuloku? og er honum óhætt að byrja að rukka vexti frá þeim degi? eða væri honum stætt að rukka vexti frá þeim degi sem ég gengist við rækjusamlokuskuldinni. Er það ekki búðin/kassadaman sem á að fara fram á greiðslu hjá mér?
Last edited by
fart on Sun 28. Feb 2010 14:08, edited 1 time in total.
E36 M3GTtt