Jæja, langur dagur loksins búinn. Búinn að skipta um öll bremsurör frá dælu og afturí, bara pain að græja þetta snyrtilega enn það hafðist að lokum með smá þolinmæði, herti líka uppá handbremsunni.
Er núna búinn að skipta um spindil h/m, bremsuklossa framan og aftan, bremsuvökva á öllu kerfinu, allar perur, olíu og síu og liðka allar bremsudælur upp.
Svo skellir maður sér í skoðun ef það verður ekki ófært í fyrramálið. Rétt komst heim á sumardekkjunum áðan.
Svo núna það sem er eftir er að skella LSD í hann, lowtec lækkunargormum og kW dempurum að aftan, felgugang í pólýhúðun og ný dekk á 17" felgurnar. Þetta stefnir í MEEEEEGA SKEMMTIILEGT SUMAR!
