Veit ekki alveg hvaða vitleysa er í gangi hérna
ég skipti um kertaþræði fyrir sirka viku síðan þarsem þeir gömlu voru ónítir, setti einnig 98okt bensín á bílinn og setti svo nokkrum sinnum í gang eftir það og bíllinn hafði ekki gengið eins solid og flott í langann tíma!
svo nokkrum dögum seinna er ég að bralla eitthvað og ætla prufa setja í gang, þá startar og startar dótið bara en ekkert gerist
þá verð ég frekar hissa og fer léttilega yfir kertaþræði og ekkert að þeim, tek þá kerti úr og það er blautt af örlittlu bensíni, tek þá öll kertin úr og þríf og prufa svo að starta og bíllinn fer þá í gang og annan eins skítagang hef ég sjaldan heyrt gekk bara ekkert á öllum heyrðist mér,
þá tek ég öll kerti úr og læt kertin í þræðina og prufa að láta neysta i gegnum þau og öll 6 kertin og þræðir virka fínt, svo skrúfa ég draslið aftur saman og sami ógeðistruntugangur aftur,
þá fer mér að detta í hug að bíllinn sé að fá falskt loft, gat ekki séð neitt að vacum slöngum svo ég læt mér detta í hug að soggreinapakkning sé kanski að blása út,
tók soggreinina af en sá svosem ekki neitt að pakkningum þar,
svo í kvöld ætla ég og Árni að skrúfa þetta allt aftur saman vel og prufa hvernig gangurinn hljómar eftir það, ef hann verður enþá með sama truntugang ætla ég að ráðfæra mig við GunnaGST með að taka logg af þessu
frekar fáranlegt að bíll bili inní skúr óhreyfður
vona að þetta verði komið í lag sem allra first svo ég þurfi ekki að fresta tímanum í púst