Giz wrote:Nú þekki ég þetta ekki nógu og vel ég skil þetta þannig að höfuðstóllinn sé alltaf í isk og því fari hann tilbaka þangað auk vaxta að sjálfsögðu. Hvort það væri tekið frá degi lántöku eða annað veit ég ekki. Það er svo langt síðan að ég hef spáð í svonalagað og hef auk þess ekki búið þarna né fylgst mikið með í mörg ár.
En mjög forvitnileg, eða tragíkómísk aðstaða sem upp gæti komið.
G
Já og ef þetta er málið - standa þá ekki lánin bara með vöxtum?
Ég er nú ekki búinn að skoða þetta 100% en minn skilningur á þessu er einmitt sá sami. Sem ætti að leiða til lækkunar á höfuðstóli lánanna þá væntanlega í samræmi við gengi dagsins þegar lánið var tekið og ofgreiðsla lánanna ætti þá væntanlega einnig að koma til lækkunar og/eða í formi inneignar, sem myndi aftur leiða til gríðarlegs tekjumissis lánastofnana í formi greiðslu afborgana skuldara af lánum.
Síðan er aðal spurningin hvort Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms.


