Aldrei farið til tannréttingasérfræðings en langar að láta kíkja á tennurnar mínar. Tannlæknirinn minn gerir þetta ekki. Getiði mælt með einhverjum?
Vonandi eru/voru einhverjir hérna með skakkar tennur og geta bent mér á einhvern
kv. Árni



kalli* wrote:Berglind Eitthvað í tannréttingarstofunni í einn af blokkunum á hæðinni hjá Smáralindinni er fáránlega góð, var þar hjá henni í 2 og hálf ár. Ljúfar konur (bara konur að vinna þarna) sem koma mjög vel fram við mann og Berglind kann svo sannarlega sitt í þessu !
Þú gætir ímyndað þér blokk....sprengdu hana svo niður með 50 kg af C4, ímyndaðu þér svo rústirnar sem tennur, þannig voru þær hjá mér. Núna gæti ég samt ekki verið ánægðari með þær, hversu mikill hryllingur sem það gæti orðið, ég skal gá hvort að ég finn myndir af fyrir og eftir![]()
Verðið hinssvegar veit ég ekki hvort að sé eins hjá öllum, pabbi borgaði () þannig að ég er ekki klár á kostnaðinn, skal spurja hann samt. Þetta var samt alls ekki ódýrt það veit ég...
arnibjorn wrote:Ég er svo heppinn að vera með rétt bit og allt þannig. Fór til tannréttingasérfræðings þegar ég var yngri og hann vildi ekki setja í mig teina.
Ég er hinsvegar með skakka framtön og ég hef heyrt að fólk hafi verið að fá teina bara yfir framtennurnar. Ég er svona aðallega að skoða þann kost.
Langar að fara og láta meta þetta og vita hvort þetta sé hægt og hvað þetta komi til með að kosta. Væntanlega ódýrara en allur tannréttingarpakkinn en bara spurning hversu dýrt þetta er![]()
En takk fyrir þessar ábendingar!

Kristjan PGT wrote:arnibjorn wrote:Ég er svo heppinn að vera með rétt bit og allt þannig. Fór til tannréttingasérfræðings þegar ég var yngri og hann vildi ekki setja í mig teina.
Ég er hinsvegar með skakka framtön og ég hef heyrt að fólk hafi verið að fá teina bara yfir framtennurnar. Ég er svona aðallega að skoða þann kost.
Langar að fara og láta meta þetta og vita hvort þetta sé hægt og hvað þetta komi til með að kosta. Væntanlega ódýrara en allur tannréttingarpakkinn en bara spurning hversu dýrt þetta er![]()
En takk fyrir þessar ábendingar!
Ég á við sama vanda og búinn að vera í sömu hugleiðingum. Það er hægt að fá teina á bakvið tennurnar svo maður sé ekki eins og bjáni
Group buy?

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests