Einari wrote:
Legurnar í E39 eru þannig að maður skiptir í rauninni um allt nafið og stykkið boltast bara á stöttann með 4 12mm boltum þannig að maður kemur hvergi nálægt því að herða að legunum sjálfum, það er búið að gera það fyrir mann í verksmiðjunni.
Annars setti ég svona legu frá TB að framan í E39 bílinn minn og ég hef ekki orðið var við neitt óeðlilegt í sambandi við hana...
http://bmwfans.info/parts/catalog/E39/S ... ront_axle/front_spring_strut_carrier_wheel_bearing/
nákvæmlega þið sem ek þekkið til e39, þetta er bra eitt stk (allt nafið), kemur tilbúið til ísetningar, og þeir skiptu um þessa legu sjálfir í seinna skiptið og hvað varðar bremsurnar að framan í þessum bíl eru í topplagi og hafa alltaf verið síðan ég eignast hann, meira að segja nýbúinn að skipta um klossa, renndi diska og allar færslur og stimplar voru liðugir og fínir...
í hvorugt skiptið var komið hjóð í leguna bra þónokkuð slag...
er svosem ekki að kenna neinum um, bra nett pirraður

enda leiðinda mál, kostar 25þús kall svona lega og vildi bra sjá hvort einhver hefði lent í brasi með þetta
Auðvitað er rétt hjá þér að nefna þetta hér, getur verið að eitthver hafi lent í svipuðu. Menn eru soldið hörundsárir þegar það kemur að TB hefur maður tekið eftir, en eins og þú nefnir
en auðvitað beinir augað þangað fyrst þar sem þetta var keypt þar og skeður ekki einu sinni heldur tvisvar
Þá hljóta þeir að skoða sína vöru en ekki vera með stæla og leiðindi! EN ég skil svo sem ef þeir hafa látið þig heyra það ef að þú hefur sjálfur verið með eitthver læti niðurfrá hjá þeim