doddi1 wrote:
Beemer wrote:
20"Tommi wrote:
Alpina !!
Það er nú eitt sem gleymist að tala um hér ..!!!
Bankarnir sjálfir eru búnir að fá gríðarlegar afskriftir af sínum eigin lánum 40 - 80 % í sumum tilvikum
en við jón jónsson fáum hvað ? 20 % Hvert er réttlætið í þvi .
Þessir drullusokkar fá sum lánin sin afskrifuð úr gömlu bönkunum en út lánin til okkar standa í nýju bönkunum.!!!!!!

Það sem er kannski minna talað um eru allar þessar óbeinu afskriftir þar sem það er verið að breyta lánum yfir í eignarhluta í verðlausum fyrirtækjum... lýtur mjög vel út á pappír og þeir sem framkvæma þetta eru að vinna sína vinnu voða voða vel og fá klapp á bakið og feitann launaseðil ala 2007. Hugsunin er sú að bankinn eignast eitthvað x verðlaust félag og þar sem við erum öll svo ofboðslega klár og æðisleg þá getum við snúið við rekstrinum með því að dæla enþá meiri pening í þessi gjaldþrota félög og selja þau svo. Enda erum við margbúin að sanna það að við erum frábærust og best og getum allt betur en aðrir... sjáum bara t.d Magasin du Nord í danmörku... einmitt.
En það er ekkert hægt að gera fyrir eigendur fasteigna og bíla annað en að frysta lánin eða lengja þau... og með þessum lengingum og skuldbreytingum yfir í Íslenskar þá er lántakandinn í mörgum tilfellum ef ekki flestum að greiða meira yfir lánstímann en með upprunalega lánið og bankinn græðir í stað þess að tapa, því jú við erum öll svo vitlaus og föllum fyrir sama kjaftæðinu aftur og aftur... því jú ef einhver sérfræðingur í bankanum segir að þetta sé málið þá hlýtur hann að hafa rétt fyrir sér.
AF hverju í andskotanum er fólk ekki að mótmæla þessu? Ætli það séu ekki allir alltaf að bíða eftir að einhver annar byrjar og allir spyrja sömu spurninganna, en enginn gerir neitt... eins og ég
Er ekki spurning um að fara að gera eitthvað í þessu og hætta að láta sama fólkið taka sig aftur og aftur í þurrt rassagatið?

Remember, remember the 5th of November, the banking treason and plot. I know of no reason why the banking treason should ever be forgot.
ég persónulega hef ekki mikilla hagsmuna að gæta í þessum bankastofnunum enda er ég ekki mjög skuldsettur né eignamikill maður.
en mér finnst þetta alveg svívirðilegt hvernig er verið að misskipta auðnum hérna og það er kominn tími á aðgerðir fólksins í landinu.
hryðjuverk eru næst á dagskrá, engar málningarslettur lengur
Nákvæmlega!
Og ríkisstjórn íslands og bankarnir vita vel að við höfum valdið. Ég furða mig á því afhverju allir viðskiptavinir Arion Banka eru ekki búnir að fara annað, það þarf varla að spyrja að leikslokum ef allir færa sig í einu, það eru þokkaleg skilaboð.
Ég persónulega veit ekki hvernig best er að koma af stað svona hóp aðgerðum, það er mín tilfinning að það sé komið ákveðið vonleysi í Íslendinga, engin lausn framundan, sem er náttúrulega rangur hugsunarháttur en ríkið og bankarnir nærast á svoleiðis vonleysi.
Guðmundi Andra (
www.gandri.com) tókst allavega að fá stórann hóp skuldara hjá Frjálsa til að fara í greiðsluverkfall, mig minnir að heildar lánapakki þessa hóps hafi verið yfir milljarður, þannig að nokkrar millur skiluðu sér ekki í bankann á réttum tíma, einnig átti hver og einn að hringja inn í bankann sama dag, símkerfið hjá Frjálsa fór á hliðina
