Jæja smá update á þetta,
Opnaði húddið og ákvað að skoða þetta eitthvað þrátt fyrir 0 kunnáttu mína á svona lagað. Held ég hafi rekist á eitthvað sem er ekki alveg eins og á að vera.

Þetta sést um leið milli vélarinnar hjá hjólarbúnaðinum, og mér fannst það frekar skrítið að það skuli vera holótt þarna á milli svo ég kíkti nánar á þetta og sá þetta;


(Sama fóðringin, litin út frá báðum hliðum.)
Viti menn, þrátt fyrir enga kunnáttu mína á svona hlutum held ég að það sé alveg gefið að þetta á ekki að vera svona, sérstaklega þar sem það er svona hinum meginn.


(Sami litinn út frá báðum hliðum)
Fór svo inná realoem.com og kíkti á þetta, fann það þar,

Virðist vera þetta númer sex, leitaði svo númerið uppi og þetta kallast víst ''Fóðring fyrir spindil'' inná bifreid.is . Nú er ég ekkert svo mikið að spá í verðið á vörunni sjálfri (7200 kall) heldur hverning ég á að fara að því að skipta þessu út ? Er það eitthvað mikið vesen ? Ekki það að ég fari að reyna þetta aleinn heldur reyni ég að fá einhvern með mér sem hefur eitthvað vit í þessu...
Svo líka eitt, á neðstu myndinni þá er hin fóðringin litinn út fyrir að vera farin að ''flagna'' ef þið skiljið hvað ég á við, er þessi þá farin að fara líka ?
Vona allavegana að ég hafi rétt fyrir mér með þetta, annars væri það mjög vandræðarlegt
