bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 11:30

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 168 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 12  Next
Author Message
PostPosted: Sat 06. Feb 2010 10:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
skil gremju þína vel drolezi, þegar ég var að reyna díla við þá þá var bara ekkert í boði og aðferðir sp og úrræði til skammar..

ég vona að þetta fyrirtæki brenni

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 06. Feb 2010 12:19 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Posts: 1045
Location: Spánn
Ég hvet menn til að hafa samband við Guðmund Andra, varðandi ykkar stöðu hjá Lýsingu, hann er líka að vinna í lánum hjá Frjálsa.
Hann er bara litli jón eins og við sem vill réttlæti, er búinn að stútera þessi lán og allt því tengt undanfarna mánuði, og ansi margt fróðlegt og subbulegt hefur komið í ljós.

gandri@gandri.com / www.Gandri.com

Hann er t.d. löngu hættur að borga lýsingu eins og þeir ætlast til, heldur borgar hann miðað við upphaflega samningsupphæð + auðvitað eðlilega hækkun. t.d. út af verðbólgu. Lýsing hótaði náttúrulega að rifta samningnum og sækja bílinn, en þetta er eitthvað að fara í dóm og Lýsing hætti við.

Reyndar held ég að hann sé bara ekki að borga neitt, þar sem hann telur sig hafa borgað þeim of mikið, og ætlar að borga þegar það klárast.

Svo heyrir maður allskonar sögur af símtölum við einhverja tappa í þessum fyrirtækjum.
Einn lögfræðingur hjá Lýsingu nánast viðurkenndi óbeint að erlendu bílalánin séu vitlaust skilgreind, svo sagði hann að Guðmundi myndi aldrei takast að fá fólkið með sér í aðgerðir.

Svo er ýmislegt annað sem má ekki fara á netið.

Eina sem ég veit er að þessi fyrirtæki eru virkilega subbuleg! Og stjórnendur þeirra líka!

:arrow: http://gandri.com/?p=615&lang=is


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 09. Feb 2010 18:51 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 05. Dec 2006 23:11
Posts: 320
Location: Grafarholt, Reykjavík
drolezi wrote:
Ég hringdi auðvitað í SP til að kanna hvort það yrði komið á móts við þá sem væru þegar búnir að greiða upp lánið sitt. Það er verið að kanna möguleikann á því að koma á móts við þá aðila í samvinnu við ríkisskattstjóra.

Fékk bara að vita að ég ætti að fylgjast með heimasíðunni þeirra.

Vonandi fæ ég að éta minn fyrri póst...


Vertu bara ánægður að bílalánið (Djöfullinn sjálfur) Sé farið af þér :)
Sjálfur er ég hjá Avant og er í noregi, er allveg að vera kominn með nóg uppí mitt lán, höfuðstólslækkun eða ekki ég borga þetta um leið og ég hef krónuna til þess. Punktur :D

_________________
Chrysler Crossfire 3.2L 05' *Í notkun*

E46 325i Limousine 04' *SELDUR*
Kawasaki KX 250F 05' *SELT*


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 09. Feb 2010 21:30 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
Konan fór niðureftir í dag til frjálsa og ætlaði að ath hvað væri í boði, þá var nánast ekkert í boði nema þú sért atvinnulaus (hún er í fæðingarorlofi í rúma 4 mánuði í viðbót)

nema þá þessu skuldbreytingarlausn..

Quote:
Greiðsluskjól Frjálsa fjárfestingarbankans fyrir einstaklinga með erlend lán

Frjálsi fjárfestingarbankinn er stoltur af að kynna viðskiptavinum sínum skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar.

*
Lækkun höfuðstóls erlendra lána um 26% að meðaltali
* Allt að 41% minni greiðslubyrði
* Úrræðið stendur til boða frá 14. desember nk. til loka febrúar 2010
* Greiðsluskjól sem kemur til móts við þarfir heimila

Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingarbankans stendur til boða 26% lækkun höfuðstóls að meðaltali þegar láni er skuldbreytt í íslenskar krónur. Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings. Við skuldbreytinguna verður lánið að íslensku verðtryggðu láni, 25 eða 40 ára, með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.

Jafnframt standa viðskiptavinum til boða fastir óverðtryggðir 6,00% vextir í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.

Með aðgerð þessari geta lántakendur í viðskiptum við Frjálsa fjárfestingarbankann lækkað greiðslubyrði sína af erlendum fasteignalánum um allt að 41% og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.

Úrræði Frjálsa fjárfestingabankans myndar greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána. Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða frá 14. desember næstkomandi og út febrúarmánuð árið 2010.

Frjálsi fjárfestingarbankinn tekur auk þess þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun.



en svo samkvæmt smáaletrinu á samninginum sem henni var afhentur þá eftir þessi 3ár þarf hún að borga upp afganginn eða bíllinn tekinn og þessi blessaði afgangur er sirka 500 þús

þetta er lán sem var uppá rúm 700 þús en fór hæðst uppí 1300 þúsund

og ég spyr hvar er þessi hjálp við heimilin ?

kannski skil ég þetta bara vitlaust


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 09. Feb 2010 23:39 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 19. Jan 2007 14:09
Posts: 113
siggik1 wrote:

þetta er lán sem var uppá rúm 700 þús en fór hæðst uppí 1300 þúsund

og ég spyr hvar er þessi hjálp við heimilin ?

kannski skil ég þetta bara vitlaust


Myndi nú ekki svitna yfir þessari hækkun, bara helvíti vel sloppið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 09. Feb 2010 23:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
manneskja sem tók 700þús í lán, er kannski ekkert betur stödd með 1300k lán heldur en manneskja sem tók 3m lán sem fór í tæpar 6,

ég þekki manneskju sem skuldar undir milljón, og er að fara í gjaldþrot vegna þess að það er bara meira en hún ræður við..

bankarnir og lánafyrirtækin koma ekkert á móti fólki, þessi úrræði eru ekkert annað en blekking, og það versta er að þetta fær að rúlla svona vegna þess að svona fæst peningur uppí skaðan,
fólk verður áfram látið borga eins og það getur til að minnka skaða bankana, og rýra ekki eignasafn þeirra,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 12:08 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Já það er alveg hryllileg tilhugsun að fólk þurfi að borga skuldir sínar :?


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 12:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Jónas wrote:
Já það er alveg hryllileg tilhugsun að fólk þurfi að borga skuldir sínar :?


Fólk er nú rukkað rúmlega það.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 12:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
Jónas wrote:
Já það er alveg hryllileg tilhugsun að fólk þurfi að borga skuldir sínar :?


Fólk er nú rukkað rúmlega það.


Menn eru vælandi ,, þvílíkt, :shock: :shock:

Þið sem tókuð þessi lán , þið verðið nú aðeins að gera þetta upp við ykkur sjálf,, þið höfðuð val

og tóku lán,, staðan breytist til hins verra , veit ég vel

aðferðirnar eru harkalegar ,, veit það vel líka ,, og jaðra hreinlega við Spánska réttinn , lýðræðið er á sambærilegu plani

en ekki alltaf skella skuldinni á aðra

menn verða einnig að horfa í eiginn barm og spurja sig sjálft hvort að þetta bílalán sem það tók hafi virkilega verið nauðsynlegt, eða var verið að svala einhverjum hégóma
sem kom svo illa í bakið þegar allt fór á versta veg,,

er ekkert að skammast út í einn eða neinn,, en ekki spila hinn saklausa þegar skynsemin til greiðslugetu var kannski ýtt til hliðar og menn svöluðu hégómanum með ótímabærum fjárfestingum,, sem komu margfalt hryllilegri út en nokkurn gat órað

ath,, bara mitt álit

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
mér finnst alltaf gaman að sjá menn tala um að fólki sé nær..

jú fullt af fólki var nær. það fólk er líka í flestum tilfellum löngu farið á hausin,

það að lán hækki um helming, m.a vegna þess að bankarnir hafi tekið stöðu gegn krónuni er forsendubrestur,

það að fólk sem var með lán í íslensku og vildi ekki gjaldeyrislán, sitji samt með miklu hærra lán og miklu hærri afborganir er einfaldlega óásættanlegt,

fólk sem missti vinnuna og lenti í því að á sama tíma jukust skuldir um helming, á ekki skilið einhverja fávita að fræða þau um að þeim hafi verið nær.

það er ekki eðililegt að fólk sem skili inn bíl sem áður var EKKI fjármagnaður að fullu, sitji eftir með upphæð sem er miklu hærri heldur en það sem hvíldi á bílnum.

þessi lánafyritæki hafa hegðað sér viðbjóðslega og svifist einkis í framkomu við fólk og bókstaflega svikið viðskiptavini sína,

það er ekkert óeðlilegt við að vera með bílalán, og það er alveg hægt einnig að vera með bílalán án þess að' skulda 10 milljónir í RR, langmest af því fólki sem er í bölvuðum vandræðum var bara með venjulega bíla, og eðlilegar upphæðir. og mér finnst ekkert annað en ógeðslegt að sjá menn alveg eiturglaða að hrauna yfir ófarir fólks.

þeir sem halda því fram að það fólk sem er í vandræðum v/skuldastöðu í dag eftir allar ófarirnar sem hafa átt sér stað hérna undanfarið eitt og hálft ár geti sjálfum sér um kennt, ég voina að það skeði eitthvað hræðilegt fyrir ykkur

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
íbbi_ wrote:

þeir sem halda því fram að það fólk sem er í vandræðum v/skuldastöðu í dag eftir allar ófarirnar sem hafa átt sér stað hérna undanfarið eitt og hálft ár geti sjálfum sér um kennt, ég voina að það skeði eitthvað hræðilegt fyrir ykkur


Hverslag er þetta ..... þetta er eins og JIHAD yfirlýsingar hérna :shock:

það var enginn að neyða einn eða neinn til að taka öll þessi lán

staðan er svona í dag.. það er alveg ljóst,, en að fólk hafi getað tekið slíkar upphæðir og allt að gerast,, og ekki hugsað dæmið til enda , með tilliti til óhagstæðra afleiðinga sem fáir virðast hafa gert,, og svo fór allt enn verr en það :x

þetta er ekki BARA Davíð ,,Geir eða Ingibjörgu Sólrúnu að kenna.. fólk var í vímu sukki , og ansi margir voru í mikilli umframneyslu á fjármagni .. þetta er STAÐREYND

ath ,, ég er ekki að blanda inn í þetta sparnaði sem fólk missti í bönkunum,, en fékk að halda eftir skuldum

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
bimmer wrote:
Jónas wrote:
Já það er alveg hryllileg tilhugsun að fólk þurfi að borga skuldir sínar :?


Fólk er nú rukkað rúmlega það.


Menn eru vælandi ,, þvílíkt, :shock: :shock:


Held að þú sért nú mesta væluskjóðan bara.

Það sem lánafyrirtækin eru að gera við fólk sem ræður ekki við stökkbreyttan höfðustól
er náttúrulega glæpastarfsemi. Þe. bíllinn tekinn uppí á slikk, búnir til sky high viðgerðar-
reikningar, bíllinn seldur á slikk aftur til vina og vandamanna lánastofnanna og svo kúnnanum
sendur feitur reikningur. Kannski finnst Sveinka harða þetta bara ok en mér finnst það ekki.

Svo eru það íbúðalánin erlendu - fjármálafyrirtækin eru búin að fá þetta afskrifað að stórum
hluta inn í sínar bækur en ætla að rukka þetta in full út yfir gröf og dauða. Að vísu eru
gimmick úrræði í boði en þau miða öll að því að fresta greiðslu þannig að bankinn fái sitt
þrátt fyrir að hafa fengið það niðurfellt sjálfur að stórum hluta.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
að sjálfsögðu var fullt af fólki sem lifði gjörsamlega óraunhæfu lífi, og skuldsetti sig svo að því hefði aldrei verið bjargað, hvort sem hrunið hefði komið eða ekki,
það sama fólk og fólk sem hegðaði sér þannig er líka í dag flest löngu komið í gjaldþrot,

flestir sem eru ennþá að díla við þetta er fólk sem er búið að vera reyna borga, og er í flestum tilfellum fólk sem að var ekki að braska með bíla eða íbúðir eða aðra hluti á lánum,

það er hellingur af fólki þarna úti sem er í hræðilegum vandræðum. og á leið í gjaldþrot, sem var ekki að lifa um efni fram,
maður sem var með 2-3m bílalán og réð auðveldlega við að borga það, en situr kannski uppi með 6m og á annað hundruð þúsund í afborganir, þarf ekki að vera einhevr óreiðumaður, jú ég veit að han hefði átt að taka ekki gjaldeyrislán, en svona lá bara landið og þetta þótti eðlilegt á sínum tíma. og bankarnir lögðu sig hart fram við að útskýra ágæti þessara lána framyfir hin,
ég sjálfur tók bílalán og vildi það í íslensku (eins og alltaf) en sá svo þegar ég seðilin að um jen og franka lán var að ræða, .þegar ég hringdi til að athuga af hverju þá hafði lánið bara samt verið haft í jenum og frönkum af því að það var miklu hagstæðara,
þegar ég fór að rífa mig þá skildi hann ekkert í mér og spurði hvort égt vildi virkilega fara læsa höfuðstólnum á láninu.

það er ljótt að sparka í liggjandi fólk.. og maður er alltaf að sjá meira og mejira af fólki í dag vera gamna sér yfir óförum annara varðandi svona mál, og mér finnst það einfaldlega rangt. aðferðir og aðgerðir lánafyrirtækjana eru ansi oft það sem hefur valdið fólkinu mestu vandræðunum

ég sjálfur var með lán á bíl, sem var rúmar 3.5m, og bíllinn um 6m í verði, keyptur nýr, afborganirnar á því láni urðu rúmlega 100k en höfðu verið rúmlega 60 fyrir, þegar ég mætti og gerði grein fyrir að ég ætti í vandræðum með að borga, enda hafði ég misst báðar vinnurnar mínar, og svikin með laun langt aftur í tíman,
þá vildu þeir taka bílin,
þeir sendu mér svo reikning uppá tæpar 5m. eftir að þeir tóku bílin, og lánið hafði verið í undir 4m. í þokkabót rukkuðu þeir um yfir 400þúsund fyrir verðmatið á bílnum, og verðlögðu bílin á 1.5m, sem hafði verið keyptur nýr á tæpar 6 nokkrum mánuðum fyrr.
þeir höfðu svo greinilega nuddað bílnum eitthvað utan í eftir að þeir tóku hann, og settu áætlaðan kostnað á reikningin minn, og rukkuðu mig fyrir þrif á bílnum, en samt þegar ég skoðaði bílin þá lá bók sem ég hafði gleymt ennþá í farþegasætinu, (sá sem keypti bílin kom með hana til mín) hann keypti svo bílin á mun hærri pening en þeir létu mig fá fyrir hann.
það er ekkert eðlilegt við svona aðfarir að fólki og ég veit um mikið svæsnari dæmi

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
[
Það sem lánafyrirtækin eru að gera við fólk sem ræður ekki við stökkbreyttan höfðustól
er náttúrulega glæpastarfsemi. Þe. bíllinn tekinn uppí á slikk, búnir til sky high viðgerðar-
reikningar, bíllinn seldur á slikk aftur til vina og vandamanna lánastofnanna og svo kúnnanum
sendur feitur reikningur. Kannski finnst Sveinka harða þetta bara ok en mér finnst það ekki.


Já...... ég er alveg sammála um ósvífnar aðgerðir að hálfu lánastofnanna

Ekki vera að koma með að mér þyki þetta í lagi,, :thdown:

þetta er slæm staða en þurfum við ekki að taka afleiðingum gjörða okkar,,

ég hef aðeins fengið að borga meira en mér bar ,, þér ætti að vera fullkunnugt um það

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 10. Feb 2010 13:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég held við fáum að taka afleiðingunum hvort sem okkur ber þær raunverulega eða ekki,

það mætti samt alveg fara að skoða aðeins hvernig þessi fyrirtæki hafa hagað sér, þetta getur varla staðist lög,
það er nú þegar búið að koma uppúr krafsinu að gjaldeyrislán séu og hafi verið ólögleg,

einnig er mjög óeðlilegt að t.d bankarnir hafi vísvitandi tekið stöðu gegn vipskiptavinum sínum, það er forsendubrestur og ætti að vera samningsrof,

þessar skuldir teljast allar til eignasafns bankana, og svona á að borga brúsan til að rýra ekki stöðu bankana, fólkið verður látið blæða, og svo ofan á þetta er skellt þúsundum miljarða ofan á fólk hérna, sem voru einkaskuldir einkafyrirtækja.
sömu einstaklingarnir eru svo að hrifsa þetta til sín aftur

það hlýtur að fara sjóða almennilega uppúr hérna.. það ætti að refsa þessum mönnum fyrir föðurlandsvik

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 168 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 12  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group