trigger wrote:
Það má segja að það sé "eitthvað" búið að vera að angra rafmagnið í E38 ('97) hjá mér frá því ég tók við honum í mars 2008. Byrjaði fyrsta kvöldið að dúndra þjófavörninni á í tíma og ótíma. Ég skipti um geymi (01.04.08) og allt gekk vel þangað til í miklu frosti í febrúar 2009 þá vildi hann ekki í gang. Startarinn tók við sér í smástund, stoppaði, fór af stað aftur (autostartfídusinn væntanlega að klikka) og aðalljósin "blikkuðu" í takt við þetta. Annar nýr rafgeymir og allt gott... þangað til 03.01.10 ! Þá þurfti hann að vera úti eina öfluga frostanótt (lánaði bílskúrinn í afísun á gamalli Zúkku) og viti menn sama hegðun! Eftir smástart (frá Zúkku... neyðarlegt!) og látinn ganga vel og lengi var hann til friðs þangað til á fimmtudaginn var (28.01.10) þá kom sama hegðun upp á bílastæði út í bæ. Daginn áður hafði verið farið í marga stutta skreppi og það var undir frostmarki.
Það er búið að ganga úr skugga um útleiðslu og hún er eðlileg m.v. svona bíl og hleðslan er góð og ég trúi ekki að ég hafi fengið tvo ónýta rafgeyma í röð. Ég fór því á stúfana og eftir dálítið gúgl er ég á því að
http://www.meeknet.co.uk/E38/E38_Battery_Drain.htm sé skynsamlegasta lesninginn um málið. Þetta smellpassar við notkunarmynstrið hjá manni, stuttar ferðir (bíllinn er á Akureyri) og jafnvel notkunarleysi í 2-3 daga í röð. Rafkerfið hefur s.s. þess utan hagað sér eðlilega nema þetta. Eins og kemur fram á síðunni eru kerfi í bílnum að nota rafmagn í allt að 16 mínútur eftir að það er drepið á honum og allt að 6Amp! Svo er tvísýnt um hvort stuttar ferðir með fullri rafmagnsnotkun og lágum snúningi gefi alternatornum svigrúm til að vinna upp startið (sem étur auðvitað mikið líka!).
Ég ákvað því áður en ég færi að eyðileggja þriðja rafgeyminn á jafnmörgum árum að versla mér "sjálfvirkt" 6Amp hleðslutæki hjá Stillingu (innan við 10.000kr) og skellti því á hann yfir nótt. Fullhleðsla á 100Ah geymi ætti að taka 17klst tæpar svo ég lét hann standa frá 14:00 til 08:00 morguninn eftir og hann getur ekki hafa verið alveg tómur (fór í gang áður en hleðsla hófst). Það gæti auðvitað verið tilviljun en mér fannst hann léttari í gang eftir hleðsluna en oft áður eftir að hafa staðið yfir nótt.
Þó það hafi verið straumur á geyminum varð líklega spennufall þegar "state of charge" var orðið lægra en góðu hófi gengdi og það gæti haft áhrif á rafeindastýringar (þó startarinn hamist!). Nýrri E38 eru með tvo rafgeyma sem mjög sennilega var gert til að koma í veg fyrir þetta / draga úr þessu vandamáli.
Þessi "uppgötvun" gaf bílnum a.m.k. einn séns í viðbót... vona að þetta gæti komið einhverjum öðrum að gagni líka og hjálpað til við geðheilsuna (mín var tæp á tímabili) hjá eigendum rafmagnsháka. Þetta er þó ágætis "tvinnbíll" og talsvert skemmtilegri í akstri en Prius.
Ég á við mjög svipað rafmagnsvandamál að stríða í mínum E38, 750. Ég skrifaði á sínum tíma einhvern þráð hérna inn, virðist vera sem svo að enginn geti beint lagað vandamálið sem orsakar þetta(þ.e. fundið útleiðslu ef t.d. og komið í veg fyrir hana) heldur bara farið í að bregðast við afleiðingunum.
Það versta þykir mér að ég hef ekki afnot af bílskúr, og engin leið er að leiða rafmagnssnúru út að bílastæði hjá mér.
Hef bara hreinlega neyðst til þess að taka mínuspólinn af rafgeyminum í hvert einasta skipti sem ég legg bílnum lengur en sirka 2 tíma samfleytt.
Hef verið að standa í því í um 2 og hálft ár... satt best að segja fer að verða full þreyttur á þessu.
