Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61

Postby Svessi » Mon 25. Jan 2010 14:36

EDIT NR. 2:
Jæja, fundum loksins út að neminn var meira eyddur heldur en við héldum í fyrstu, tengin í nemanum voru farin í sundum, fengum nýjann nema hjá TB og þá gekk upp að endursetja service ljósið.

--

Smá leiðindi í bílnum hjá pabba, BMW 525iA Touring ´05 E61
Einn af fremri bremsuborðunum eyðilagðist útaf steini eða einhverju rusli svo við ákváðum að skipta bara alveg um borðana að framan, þótt borðarnir ættu sirka 1/3-1/4 eftir eða um 15.000 km samkvæmt tölvunni.
Neminn sjálfur sem gefur ljós í mælaboðrið var varla farið að sjást á, aðeins smá rispur, svo við létum hann bara vera.
Svo ætlaði ég að resetja service ljósið í bílnum, þannig að það kæmi að það væru nýjir bremsuborðar í bílnum. Það voru 15 þús km eftir, en eftir að ég reyndi að resetja þá kemur núna eins og hann sé kominn 15 þús km yfir eyðslu og kemur alltaf tilkynning í miðjuskjárinn þegar maður startar að maður verði að fara strax í BMW dealer og láta skipta um bremsuborðana að framan.

Þegar maður fer inn í systemið til að resetja töluna þá kemur að það sé -15000km svo heldur maður takkanum inni til að resetja og þá kemur ---- og svo kemur bara aftur -15000km og dettur útúr service reset stillingunni.
Svo er logar bremsuljósið í mælaboðinu núna standslaust.

Vona að það skilji mig einhver hérna hvað ég á við. Er einhver möguleiki á því að ég verði að taka bremsuborðanemann úr sambandi og setja hann aftur í samband eða eitthvað álíka. Eða er kominn upp einhver error og verð ég að setja bílinn í tölvu? Please ef einhver getur gefið mér ráð.

EDIT:
Málið var að innri klossinn bílstjóra megin byrjaði að skrapa bremsudiskinn að innan, byrjaði bara allt í einu og virkaði eins og það væri komið járn í járn þegar maður keyrði. Ég var að keyra bílinn þegar þetta byrjar og fer bara beint heim sem voru sirka 2 km svo diskurinn sjálfur skemmdist ekkert. Samkvæmt service hlutanum í bílnum áttu klossarnir eftir um 15.000 km. Við setjum nýja klossa í bílinn og skiptum um alveg að framan, já, öll fjögur stykkin, vorum ekkert að skipta um nemann því hann virtist alveg vera í lagi. Svo ætlaði ég að resetja service ljósið og þá kom allt í einu -15.000km og ég get ekki lagað það eins og sést í videoinu hérna sem ég bjó til:

Verðið að fyrirgefa gæðin, tók þetta upp á gamla digital myndavél.
Last edited by Svessi on Mon 08. Feb 2010 14:39, edited 2 times in total.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Re: Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61

Postby ömmudriver » Mon 25. Jan 2010 17:34

Skiptir þú ekki líka um KLOSSANA farþegamegin að framan? Ef svo er er þá ekki bara málið að splæsa í nýjan skynjara?
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Problem, get ekki endursett service ljósið fyrir bremsur E61

Postby JonHrafn » Mon 25. Jan 2010 18:14

Ég tók skynjaran nú bara úr sambandi hjá mér af klossanum, loopaði og strappaði hann fastan :þ
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests